Keppni 6 - Interlagos

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: viktorbodvarsson@gmail.com

Lýsing

Keppnin heitir 6. umferð Íslandsmeistaramóts í hermikappakstri.

Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.

Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 2.Arpíl 2026

Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

Dagskrá

Keyrt verður á Interlagos / Autódromo José Carlos Pace - Grand Prix

Stillt verður á 2.Apríl og veður er sjálfgefið af iRacing.
Æfing opnar kl 19:00
Keppendafundur kl 19:40
Tímataka hefst kl 20:00
Kælitími milli tímatöku og keppni hefst 20:15
Kappaksturslota hefst kl 20:20 og er ekið í 38 hringi

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Viktor Böðvarsson

Öryggisfulltrúi: Ingimundur Helgason

Skoðunarmaður: Aron Óskarsson

Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson

Dómnefnd 1: Ásta Andrésdóttir

Dómnefnd 2: Valgeir Hugberg Geirmundsson

Framkvæmdanefnd:
Aron Óskarsson og Hinrik Haraldsson.

Dagsetningar

2. April 2026 kl: 19:00

Brautir og vegalengdir

GT Akademían
Lýsing:

Hermakappakstur

Tegund/mótaröð

Hermikappakstur

Íslandsmeistaramót í hermikappakstri - 6. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 6. November 2025 kl: 14:00

Skráningu lýkur: 1. April 2026 kl: 00:00

Flokkar

Formula 4

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#1 - 31. March 2026 kl: 15:38
Upplýsingatafla með rafrænum hætti

Upplýsingatafla er Rafræn og er aðgengileg hér: Hlekkur


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR
6.Umferð - Interlagos

Íslandsmótskeppni í hermikappakstri 2026

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Umferð 2 fyrir Íslandsmeistaramót í hermikappakstri.

1.2 Keppt er í hermikappakstri eins og hann er skilgreindur í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir hermikappakstur og þessum sérreglum.

1.4 Keppnin fer fram í sýndarheimi iRacing aksturshermiforritsins þann 2.Apríl 2026.

1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.6 Keppni verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 8 skráningar.
1.7 Frjáls viðgerð; Keppendum eru gefnar 2 frjálsar viðgerðir á bílum sínum. 

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Hinrik Haraldsson og Aron Óskarsson.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin þarf ekki sérstaka gerðarvottun.

4.1.2 Keyrt verður á Interlagos.

4.1.3 Hermirinn verður stiltur á 1.apríl  2025 við keyrslu í æfingu, tímatöku og keppni.

4.1.3 Veður er ákveðið af keppnistjórn með því að ýta á Generate takkann og spáin segir að það verði skýjað en ekki búist við rigningu.

4.1.4 Eknir eru 38 hringir, (sem jafngildir 164 km.) eða í 70 mín. hvort sem fyrr kemur.

 

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:

5.1.1.a FIA Formula 4

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Hámarksfjöldi skráninga er 30.

6.1a Hámarksfjöldi ökutækja í keppni er 30.

6.1b Ef fleiri en 30 skrá sig verður tímataka sett upp til að skera úr um hverjir keppa.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS eða GT Akademíunni, gta.is/islmot.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Skráningu lýkur þann 1.apríl 2026 klukkan 17:00.

6.5 Skráningar handhafa alþjóðlegra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.5.a Keppnisgjald handhafa alþjóðlegs keppnisskírteinis er 0 kr.

6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 2.500 og felur það í sér:

6.6.a þátttökurétt í keppninni;

6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.

8.1.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 RÆSING

GREIN 9.1 ALMENNT

9.1.1 Allir keppendur skráðir til keppni fá að ræsa.

GREIN 9.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

9.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:

9.2.1.a Keppnis þjónn/server opnar kl.19:00 og æfing hefst. Ræst er frá þjónustusvæði.

9.2.1.b Keppendafundur fer fram kl. 19:40. Fundur fer fram á discord rás mótshaldara.

9.2.1.c Tímatökuæfing er ræst klukkan 20:00. Ræst er frá þjónustusvæði.

9.2.1.d Kappaksturslota er ræst klukkan 20:20. Ræst er úr kyrrstöðu. 

 

GREIN 9.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

9.3.1 Keppnisstjóri má ákveða röð ökutækja við ræsingu á æfingu og tímatökuæfingu, annars sér iRacing forritið um þessa hluti að öllu leiti. 

9.3.2 Röð keppenda við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasti keppandi ræsir fremst, næst hraðasti svo, og svo koll af kolli.

9.3.3 Keppandi má ræsa frá þjónustusvæði ef hann kýs, eða ef aðstæður krefjast þess (svo sem tækja bilanir, og nettenginga vesen)



 

GREIN 10 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

10.1 Keppendur skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.

10.1.a Keppenda fundur er haldinn á Discord rás GT Akademíunar

10.1.b Sé keppandi ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
10.1.c Keppendum er ekki heimilt að æfa akstur á braut á meðan á keppendafundi stendur.

10.2 Keppendur skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.

10.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á Discord rás GT Akademíunar. Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

10.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

10.5 Keppendum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

10.6 Keppendur skulu setja Hotkey takka í iRacing sem segir “Skoða!”, þennan takka er svo hægt að nota þegar brot á sér stað sem leikurinn getur ekki dæmt á og keppenda finnst vert að dómarar skoði, þegar ýtt er á takkann sendast skilaboð til keppnistjórnar sem skoðar málið.
10.6.a Setjið þennan texta án gæsalappa í reitinn og veljið takka til að binda við “/rc skoða!$”
10.7 Keppendur skulu hafa kveikt á og vera að senda Telemetry upplýsingar á Garage61, þetta er gert svo keppnisstjórn hafi kost á að skoða atvik með ítarlegri upplýsingum en ella.

10.8 FRAMÚRAKSTUR
10.8.1 Að “verja” ökulínu fyrir komandi beygju: Bíll sem kemur inn á beinan kafla eftir beygju er heimilt að skipta um ökulínu eins og hentar þykir til þess að brjóta tog, svo fremi sem aftari bíll er umtalsvert (yfir eina sekúndu) fyrir aftan. 

10.8.2 Leiðandi bíll má skipta um ökulínu tvisvar á beina kaflanum sé eltandi bíll innan við sekúndu á eftir. 

10.8.3 Bílar teljast samsíða nemi framdekk eltandi bíls við afturdekk leiðandi bíls. Leiðandi bíll skal gefa eltandi bíl nægt pláss, og telst ekki hafa rétt á að verja ökulínu inn í beygju. 

10.8.4 Það er á ábyrgð eltandi bíls að taka fram úr með öruggum hætti og finna tækifæri til framúraksturs án þess að stofna akstri annarra í hættu. 

 

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um hermikappakstur.

11.1.1 Þeir bílar sem klára að minnsta 50% af hringjum eru taldir hafa klárað keppni.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og keppnisstjórn hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum. (ekki í upphitun)

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sætið.

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND

13.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Valgeir Hugberg Geirmundsson og Ásta Andrésdóttir.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN

13.2.1 Keppnisstjóri er Viktor Böðvarsson

13.2.2 Skoðunarmaður er: Aron Óskarsson. Í þessari keppni sinnir skoðunarmaður því hlutverki að ganga úr skugga um að stillingar og tímasetningar séu réttar í hermiforriti. 

GREIN 13.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

13.3.1 Öryggisfulltrúi er ekki skipaður í þessari keppni þar sem hún á sér stað í sýndarheimi. 

GREIN 13.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

13.4.1 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður í þessari keppni þar sem hún á sér stað í sýndarheimi. 

GREIN 13.5 STAÐREYNDADÓMARAR

13.5.1 iRacing forritið sér um staðreyndardóma og gefur atvikastig eftir sínu kerfi.



 

 

Úrslit

Formula 4

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
0 Þórhallur Ingi Jónsson KK 0
0 Patrekur Magnusson KK 0
0 Gunnar Karl Vignisson KK 0
0 Stefán Freyr Margrétarson KK 0
0 Stefán Freyr Margrétarson KK 0
0 Alexander Hauksson KK 0
0 Alexander Hauksson KK 0
0 Arnar Kristjánsson KK 0