Orku rally 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: gardar@bilaroghjol.is

Lýsing

Orku rallý Akstursíþróttafélags Suðurnesja verður haldið helgina 5.-6.júní.

Keppnin er jafnframt fyrsta keppni í Íslandsmótinu í rallý.

Keppnin er haldin á eftirfarandi sérleiðum: Patterson Ökugerði-Stapafell , Djúpavatn Hópsnes Nikkel

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

  • Flokkur A
  • Flokkur C
  • Flokkur E - Eindrif-1000 m3
  • Flokkur E - Eindrif-1400 m3
  • Flokkur E - Eindrif-X,
  • Flokkur J - Jeppaflokkur TO

Dagskrá

 Við birtingu keppni hefst bann við leiðaskoðun á öllum leiðum, Leyft er að leiðarskoða Djúpavatn en höfum það hóflega og skoða það 2x sitthvoru átt og fer keppnistjórn fram á að keppendur verði heiðarlegir með það.

Fimmtudagur 4.júní 2026

Keppnisskoðun fer fram á Smiðjuvöllum 6 (AÍFS) 

Kl 16:30 Svæði opnar 

kl 17 Keppnisskoðun 

Kl 18:30 Áætluð keppnisskoðunar lok 

Kl 18:35 Keppendafundur 

Kl 19:00 Leiðarskoðun um Nikkel, Patterson,Stapafell og Hópsnes í halarófu með keppnisstjóra.

 

Föstudagur 5.júní 2026

Kl 16:30 Mæting á fyrstu sérleið, Patterson austur 

Viðgerðar svæði eftir Patterson vestur er á Dominosplani að Hafnargötu 86 Reykjanesbæ.

Kl 21:00 Næturhlé og Parc Fermé hjá Bílar og Hjól og Nesdekk

 

Laugardagur 6.júní 2026

Kl 8:00 svæði opnar (Bílar og hjól og Nesdekk)

Kl 8:30 Fyrsti bíll úr Parc fermé

Matarhlé/viðgerðarhlé eftir Djúpavatn suður B á plani 4x4 Adventurse í Grindavík.

Kl 16:10 Endamark Smiðjuvellir 6. 

 

Kl 16:30 Áætluð verðlaunaafhending

 

Birt með fyrirvara um breytingar.

Skipuleggjandi

AÍFS

Keppnisstjóri: Garðar Haukur Gunnarsson

Öryggisfulltrúi: Jakob Gunnarsson

Skoðunarmaður: Magnús Ragnarsson

Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson

Dómnefnd 1: Guðmundur Örn Þorsteinsson

Dómnefnd 2: Jökull Ýmir Guðmundsson

Framkvæmdanefnd:
Garðar Gunnarsson, Magnus Ragnarsson,  Kristófer Karlsson

Dagsetningar

5. June 2026 kl: 17:00

Brautir og vegalengdir

Sérleiðir í rally
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Rally

Íslandsmeistaramót -

Skráningargjöld

Skráning hefst: 21. May 2026 kl: 13:00

Skráningu lýkur: 31. May 2026 kl: 17:00

Flokkur A: 20000 kr.-

Flokkur C: 20000 kr.-

Flokkur E - Eindrif-1000 m3: 20000 kr.-

Flokkur E - Eindrif-1400 m3: 20000 kr.-

Flokkur E - Eindrif-X: 20000 kr.-

Flokkur J - Jeppaflokkur: 20000 kr.-

Flokkar

Flokkur A

Flokkur C

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#23 - 6. June 2026 kl: 17:13
Heildarúrslit

Hjálagt í viðhengi eru heildarúrslit keppninnar

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#22 - 6. June 2026 kl: 16:42
Úrslit birt

Sjá í viðhengi, bráðabirgða úrslit keppninnar.

Kærufrestur hefst við birtingu þessarar upplýsingaskýrslu og er 30 mín.

Hala niður viðhengi

Frá: Dómnefnd - Til: Áhafnar á keppnisbifreið #2 og keppnisstjóra

#21 - 6. June 2026 kl: 15:05
Boðun til skýrslutöku hjá dómnefnd

Hér með er áhöfn á keppnisbifreið #2 og keppnisstjóri boðuð til skýrslutöku hjá dómnefnd klukkan 16:20 þann 6. júní 2026, vegna atviks sem kom upp í viðgerðarhéli í Grindavík.

Dómnefnd


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#20 - 5. June 2026 kl: 22:19
Rásröð fyrir Laugardag

Rásröð fyrir laugardag:

2 1 Agnar & Ísak Ford Fiesta A
1 2 Baldur & Heimir Subaru Impreza STi A
17 3 Ingvi & Valli Ford Fiesta A
5 4 Skafti & Adam Mitsubitshi Lancer Evo A
6 5 Jóhann & Helena Mitsubishi Lancer Evo IX A
25 6 Siggi & Halldóra Mitsubishi Lancer Evo 5 A
9 7 Halldór & Sigurgeir Subaru Impreza H6 A
7 8 Björgólfur & Hergill Subaru Impreza C
66 9 Daníel & Hanna Subaru Impreza C
8 10 Almar & Vigdís Subaru Impreza C
24 11 Kristó & Aron Subaru Impreza C
29 12 Stefán & Atli Subaru Impreza C
20 13 Pálmi & Trausti Volvo 940 C
27 14 Valdimar & Hanna Mazda 3 C

Hala niður viðhengi

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#19 - 5. June 2026 kl: 22:17
Atvik í leiðarskoðun þann 5. júní 2026

Hjálagt er ákvörðun dómnefndar í atviki sem átti sér stað við leiðarskoðun á Djúpavatni um miðjan dag þann 5. júní 2026

Tryggvi M Þórðarson, Formaður dómnefndar
Guðmundur Örn Þorsteinsson
Jökull Ýmir Guðmundsson
 


 

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#18 - 5. June 2026 kl: 17:18
Bíll 27 - leiðrétting

Eftir skoðun hjá dómnefnd hefur keppanda 27 verið gefinn aukinn tími og hefur staðist keppnisskoðun.  


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#17 - 5. June 2026 kl: 16:48
Leiðrétting upplýsingaskýrslu #15

Atvik það sem er til athugunar í upplýsingaskýrslu #15 er milli bifreiða #2 og #17, ekki milli bifreiða #2 og #5.

Viðkomandi eru beðnir velvirðingar á þessu.

Dómnefnd


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

#16 - 5. June 2026 kl: 16:38
Bíll 27 mætti ekki í rásmark

Bíll 27 hefur ekki staðist keppnisskoðun og mætti ekki á tilsettum tíma til að unnt væri að klára skoðun fyrir ræsingu.


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#15 - 5. June 2026 kl: 14:52
Í athugun er atvik milli bíls #2 og #5 við leiðarskoðun þann 5. júní 2026

Dómnefnd er að athuga atvik er átti sér stað milli bíla #2 og #5 við leiðarskoðun á Djúpavatni þann 5. júní 2026.

Dómnefnd


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#14 - 5. June 2026 kl: 14:49
Breytingar á öryggisfulltrúi

Dómnefnd hefur leyst Jakob Gunnarsson frá embætti öryggisfulltrúa, að eigin beiðni.

Dómnefnd hefur skipað þá Ara Halldór Halldórsson og Guðna Sigurðsson í embætti öryggisfulltrúa. 


Frá: framkvæmdanefnd - Til: Allra

#13 - 5. June 2026 kl: 10:44
Uppfærður Tímamaster

Hala niður viðhengi

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#12 - 4. June 2026 kl: 17:12
Keppnisskoðun bíl #20

Til samræmis við beiðni frá áhöfn #20 þar sem fram kom að vegna vinnu kæmust þeir ekki til keppnisskoðunar í dag.  Dómnefnd heimilar skoðunarmanni að ákveða með áhöfninni hvenær keppnisskoðun fari fram.

Dómnefnd 


Frá: framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#11 - 4. June 2026 kl: 10:43
Uppfærð leiðarbók 3

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#10 - 4. June 2026 kl: 00:03
Uppfærð Rásröð

Smá breyting á rásnúmeri á áhöfn fer úr rásnumer 35 og í rásnumer 6

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#9 - 4. June 2026 kl: 00:00
Uppfærð


Frá: framkvæmdarnefnd - Til: keppanda

#8 - 3. June 2026 kl: 23:24
uppfærð dagsskrá

Hala niður viðhengi

Frá: framkvæmdarnefnd - Til: keppanda

#7 - 3. June 2026 kl: 23:20
ný leiðarbók

Hér er komin ný leiðarbók - breyting á ferjuleið til og frá Stapafell

Hala niður viðhengi

Frá: framkvæmdarnefnd - Til: keppanda

#6 - 31. May 2026 kl: 22:05
Rásröð

Hala niður viðhengi

Frá: framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#5 - 28. May 2026 kl: 20:21
Leiðarskoðun

Hala niður viðhengi

Frá: framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#4 - 26. May 2026 kl: 21:56
Leiðarlýsing

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#3 - 21. May 2026 kl: 21:35
Uppfærður Tímamaster

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#2 - 21. May 2026 kl: 15:23
Uppfærð dagskrá

Fimmtudagur 4.júní 2026

Keppnisskoðun fer fram á Smiðjuvöllum 6 (AÍFS) 

Kl 16:30 Svæði opnar 

kl 17 Keppnisskoðun 

Kl 18:30 Áætluð keppnisskoðunar lok 

Kl 18:35 Keppendafundur 

Kl 19:00 Leiðarskoðun um Nikkel, Patterson,Stapafell og Hópsnes í halarófu með keppnisstjóra.

 

Föstudagur 5.júní 2026

Kl 16:30 Mæting á fyrstu sérleið, Patterson austur 

Viðgerðar svæði eftir Patterson vestur er á Dominosplani að Hafnargötu 86 Reykjanesbæ.

Kl 21:00 Næturhlé og Parc Fermé hjá Bílar og Hjól og Nesdekk

 

Laugardagur 6.júní 2026

Kl 8:00 svæði opnar (Bílar og hjól og Nesdekk)

Kl 8:30 Fyrsti bíll úr Parc fermé

Matarhlé/viðgerðarhlé eftir Djúpavatn suður B á plani 4x4 Adventurse í Grindavík.

Kl 16:10 Endamark Smiðjuvellir 6. 

 

Kl 16:30 Áætluð verðlaunaafhending

 

Birt með fyrirvara um breytingar.


Frá: framkvæmdanefnd - Til: Keppanda

#1 - 19. May 2026 kl: 15:00
Tímamaster

Hala niður viðhengi
Skoða allar færslur

Sérreglur Orku rally 2026 í Íslandsmeistaramótinu 2026

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Orku rally 2026 og er fyrsta umferð Íslandsmótsins í rally 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Reykjanesi og nágrenni daganna 5- 6. júní 2026.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Aðeins verður keppt í keppnisflokkum sem 2 skráningar eða fleiri berast fyrir.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Suðurnesja, til heimilis að Suðurnes.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Garðar Gunnarsson, Magnus Ragnarsson,  Kristófer Karlsson.
3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar er Garðar Gunnarsson

3.2 Framkvæmdanefndar keppninnar er til heimilis að Smiðjuvellir 6

3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 8967392

3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er mottaka@bilaroghjol.is

GREIN 4 KEPPNISFLOKKAR

Keppt verður í eftirtöldum flokkum:

4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur C
4.1.2 Flokkur E – Eindrif 1000 m3
4.1.3 Flokkur E – Eindrif 1400 m3
4.1.4 Flokkur E – Eindrif X
4.1.5 Flokkur J – Jeppaflokkur TO

4.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 5 SKRÁNING

5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.

5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

5.4 Skráningu lýkur þann 2026-05-31 17:00:00 kl. 17:00.

5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru eru samþykktarí þessari keppni.

5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 20000
5.6.a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.

5.7  Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.a þátttökurétt í keppninni.
5.7.b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 6 TRYGGINGAR

6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.

7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 8 UPPLÝSINGATAFLA

8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/554.
8.1.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.

GREIN 9 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
9.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

GREIN 10 RÆSING

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun. 

10.2.1 Fyrsta ökutæki verður ræst kl. 17:00 samkvæmt tímaáætlun.

10.2.1.a Önnur ökutæki verða ræst með einnar 1 mínútna millibili.

10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.

10.2.2.a Tímaverðir munu telja niður að rástíma inn á sérleiðar.

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt dagskrá.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.

12.2 Verðlaun verða veitt fyrir 1. sæti 2 og 3  í öllum flokkum samkvæmt lokaúrslitum.

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND
13.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Guðmundur Örn Þorsteinsson og Jökull Ýmir Guðmundsson.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN
13.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Garðar Haukur Gunnarsson.
13.2.2 Skoðunarmaður er Sigurður Arnar Pálsson.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Jakob Gunnarsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er Kristóffer Karlsson.
13.2.6 Starfsmannastjóri er Garðar Gunnarsson
13.2.7 Tengiliður keppenda er Magnús Ragnarsson.

GREIN 13.3 STAÐREYNDADÓMARAR
13.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.

GREIN 14 KÖNNUN SÉRLEIÐA

14.1 Könnun sérleiða er leyfð þann  kemur fram i upplýsingar skýrslu. Nánari upplýsingar munu birtar á upplýsingatöflu keppninnar ef þörf verður á. 

GREIN 15 VIÐGERÐIR

 15.1 Þau svæði eða leiðarhutar sem ekki verður heimilt að gera við ökutæki á verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun ökutækja.

GREIN 16 HINDRANIR / ÞRENGINGAR

16.1 Upplýsingar um staðsetningu hindrana til að draga úr hraða ökutækja á sérleiðum koma fram í leiðarbók keppninnar og leiðarlýsingu.

GREIN 17 OFURLEIÐ

17.1 Ofurleiðin í þessari keppni er sérleið nr. 12 .

GREIN 18 AUGLÝSINGAR 

18.1 Keppnishaldari mun ekki nýta rétt sinn samkvæmt grein 7.3.1 í Keppnisgreinareglum fyrir rally til að selja auglýsingar á ökutæki.

GREIN 19 TÍMATÖKU-  OG STAÐSETNINGARBÚNAÐUR (TOS)

19.1 Ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu vera með rafrænan TOS frá keppnishaldara alla keppnina.

19.1.1 Ísetning á TOS fer fram við skoðun ökutækja, og verður framkvæmd af fulltrúum keppnishaldara.

19.2 Öll ökutæki skulu hafa eftirfarandi búnað fyrir TOS við skoðun:

19.2.1 RAM® kúlu festingu, stærð B, til að festa TOS í ökutækið. Hún skal vera þannig staðsett á/í mælaborði ökutækis að LED-ljósið á TOS tækinu sé sýnilegt  og það verði aðgengilegt áhöfn ökutækis.

19.2.2 Rafmagnssnúru með Deutsch DTM06-6S (e. female) endatengi sem er innan 20 cm frá RAM® kúlu festingunni.

19.2.2.a Pinni 1 skal tengdur við +12V DC spennu og pinni 4 við mínus (jörð) með að lágmarki 0,5q (kvaðrat) vír.

19.2.2.b +12V spennuvírinn skal varinn með 5A öryggi.

19.2.2.c Rafmagn til tengisins skal aftengjast þegar aðalrofi (höfuðrofi / e. master switch) er slökktur.

19.2.3 Viðeigandi RAM® tengiarm (e. connecting socket arm) til að tengja TOS við ökutækið.

19.3 TOS boxið sjálft er 200x50x36 mm að umfangi. RAM® kúlu festing, stærð B, er föst neðan á tækinu og stendur hún um það bil 35 mm út úr því.

19.4 Nákvæmar rekstrarupplýsingar fyrir TOS verða birtar á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun.

19.5 Ekki er heimilt að aftengja TOS eða fjarlægja úr ökutæki nema þegar áhöfn viðkomandi ökutækis er hætt keppni og skila á búnaðinum til keppnishaldara.

19.6 Við lok keppni ber að aftengja tækið og skila því til keppnishaldara.

Úrslit

Heildarúrslit

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 22
2 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
AÍFS
Ford Fiesta 18
3 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
AÍH
Mitsubishi Lancer EVO 12
4 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 10
5 Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir
BÍKR
AÍH
Subaru Impreza 8
6 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
6
7 Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir
AÍH
AÍH
Evo 5
8 Kristófer Fannar Axelsson
Aðst: Aron máni júlíusson
AÍFS
AÍFS
Subaru Impreza 3
9 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 2
10 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 1
11 Pálmi snær sveinsson
Aðst: Trausti Freyr Sveinsson
AÍH
AÍH
Volvo 940 0
12 Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdóttir
AÍFS
AÍFS
Subaru Impreza 0
13 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta R5 0
14 Valdimar Kristinn Árnason
Aðst: Hanna Lísa Hafsteinsdottir
AÍH
AÍH
yaris 0
15 Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0

Flokkur A

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
2 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
3 Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir
AÍH
AÍH
Evo 0
4 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
AÍFS
Ford Fiesta 0
5 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
0
6 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
AÍH
Mitsubishi Lancer EVO 0
7 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta R5 0
8 Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0

Flokkur C

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 22
2 Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir
BÍKR
AÍH
Subaru Impreza 18
3 Kristófer Fannar Axelsson
Aðst: Aron máni júlíusson
AÍFS
AÍFS
Subaru Impreza 12
4 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 11
5 Pálmi snær sveinsson
Aðst: Trausti Freyr Sveinsson
AÍH
AÍH
Volvo 940 0
6 Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdóttir
AÍFS
AÍFS
Subaru Impreza 0

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Valdimar Kristinn Árnason
Aðst: Hanna Lísa Hafsteinsdottir
AÍH
AÍH
yaris 0

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur