MOTUL - Torfæra

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: valdi@ba.is

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 5. umferð Íslandsmóts í torfæru þann 15. ágúst 2026 á torfærusvæði Bílaklúbbs Akureyrar.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar. 

Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar. 

Götubílar - Street legal 

Sérútbúnir - Unlimited 

Sérútbúnir götubílar 

Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni. 

Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2., og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum. 

 Upplýsingatafla keppninnar er http://nn.is/Xq4c3

Dagskrá

Föstudagur 14. ágúst 2026

18:00 Pittur opnar  Alls ekki keyra sandspyrnubrautina. Borðin er að ástæðu, sem merkir hún er lokuð fyrir akstri.

19:00 - 21:00 Skoðun keppnisbíla hefst við pitt.

20:00 Brautaskoðun fyrir almenning.

Þau ökutæki sem eru mætt og ekki næst að skoða skulu mæta til skoðunar á laugardagsmorgun. 

Laugardagur 15. ágúst 2026

07:00 pittur opnar

07:30 Skoðun keppnisbíla heldur áfram við pitt

08:00 Pittur lokar

08:15 Keppendafundur og brautarskoðun.

9:00 Skoðun lýkur

9:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið.

10:00 Keppni hefst

 Hlé 30 mín (eftir braut nr. 2)

16:00 Áætluð lok aksturs.

16:10 Verðlaunaafhending við stjórnstöð

16:30 Bráðabirgðarúrslit birt, kærufrestur hefst

17:00 Kærufrest lýkur

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Valdimar G Valdimarsson

Aðstoðarkeppnisstjóri: Tómas Karl Sigurðsson

Öryggisfulltrúi: Garðar Sigurðsson

Skoðunarmaður: Baldur Pálsson

Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson

Dómnefnd 1: Einar Gunnlaugsson

Dómnefnd 2: Arnar Smári Signýjarson

Framkvæmdanefnd:
Valdimar Geir Valdimarsson, Garðar Sigurðsson og Hrefna Björnsdóttir.

Dagsetningar

15. August 2026 kl: 10:00

Brautir og vegalengdir

Torfærusvæði BA
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Torfæra

Íslandsmeistaramót - 5. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 28. July 2026 kl: 10:30

Skráningu lýkur: 7. August 2026 kl: 17:00

Flokkar

Götubílar - Street Legal

Sérútbúnir - Unlimited

Sérútbúnir götubílar - Modified

SÉRREGLUR MOTUL torfæran- Akureyri í mótröð Íslandsmeistaramót - 5. umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir MOTUL  Torfæran og er 5. umferð íslandsmótsins í Torfæru.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæra og þessum sérreglum.

1.4 Keppnin fer fram í Torfærusvæði BA þann 15. ágúst 2026 kl: 10:00.

1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsveg 13, 603 Akureyri.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Valdimar Geir Valdimarsson, Garðar Sigurðsson og Hrefna Björnsdóttir.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis Hlíðarfjallsveg 13. 603 Akureyri, sími 8991080.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað akstursvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem er heimil er að taka þátt í keppninni.

4.1.2 Þrautirnar eru 6 í hverjum flokk, hver um 30-700 metra löng en getur verið breytilega á milli flokka.

GREIN 4.2 PARC FERMÉ

4.2.1 Allt pittsvæðið telst PARC FERMÉ.

4.2.1.a Viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistæki í PARC FERMÉ.

4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu braut skal keyra í PARC FERMÉ eftir að hafa lokið akstri.

4.2.2.a Sé ökutæki ekki í ökuhæfu ástandi skal það flitt í PARC FERMÉ af keppnishaldara.

4.2.3 Ökutæki skulu vera í PARC FERMÉ að loknum akstri síðustu brautar þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit hafa verið birt.

 

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:

5.1.1.a Götubílar - Street Legal
5.1.1.b Sérútbúnir - Unlimited
5.1.1.c Sérútbúnir götubílar - Modified

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Skráningu lýkur þann 2026-08-07 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 12000 og felur það í sér:

6.6.a þátttökurétt í keppninni;

6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð

Samgöngustofu um ökuskirteini nr. 830/2011

8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísu gildu ökuskirteini í samfæmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.

8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER

9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við grein 7.1 í Keppnisgreinareglum

AKÍS fyrir torfæru (sjá nánar á slóðinni https://reglur.akis.is/Codes/Torf%C3%A6ra/View

9.2 Um auglýsingar á ökutæki gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ökutæki skulu tilbúin í keppni í rásröð kl 9:55.

10.2.1.a Fyrsti ökutæki er ræst kl 10:00.

10.2.2. Ræst er úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara/keppnisstjóra og birt á upplýsingatöflunni.

10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í keppnisgreinagreglum AKÍS fyrir torfæru.

10.3.2.a Flokkar eru keyrðir í þessari röð: 1 - götubílar, 2 - sérútbúnir bílar og sérútbúnir götubílar blandað í rásröð.

10.3.3. Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingartöflunni og sitja hann allan.

11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum, http://nn.is/Xq4c3

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:

11.4.1.Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um Torfæra.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu að lokinni keppni samkvæmt dagskrá kl. 16:30

12.4 Dómnefnd birtir lokaúrslit keppninnar á upplýsingartöflunni.

GREIN 12.1 VERÐLAUN

12.1.1 Verðlaun verða veitt í öllum flokkum fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

12.1.2 Verðlaun verða veitt fyrir bestu tilþrif keppninnar og best in show

 

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND

13.1.1 Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson sem er formaður dómnefndar, Einar Gunnlaugsson og Arnar Smári Signýarson.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN

13.2.1 Keppnisstjóri er Valdimar Geir Valdimarsson.

13.2.1.a Aðstoðarkeppnisstjóri er Tómas Karl Sigurðsson.

13.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.

13.2.2.a Aðstoðarskoðunarmaður er Stefán Bjarnhéðinsson.

13.2.3 Öryggisfulltrúi er Garðar Sigurðsson.

13.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.

13.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

13.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 13.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

13.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

13.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

13.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

13.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.

13.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 13.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 13.5 STAÐREYNDADÓMARAR

13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.

Úrslit

Götubílar - Street Legal

Sérútbúnir - Unlimited

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Finnur Aðalbjörnsson BA Refurinn 20
2 Bjarnþór Elíasson START Olsen Olsen 17
3 Andri Már Sveinsson TK Cowboy 15
4 Guðlaugur Sindri Helgason START Olsen 12
5 Guðmundur Elíasson TK Ótemjan 10
6 Geir Evert Grìmsson TK Sleggjan 8
7 Daniel ingi Danielsson TK Green Thunder 6
8 Ingvar Jóhannesson TK Víkingurinn 4
9 Jón Þór Jónsson BA Svínið 2
10 Jón Vilberg Gunnarsson TK Lightfoot 1
24 Gunnar Guðjónsson KK Viðhaldið 0
23 Jón örn ingileifsson BA Kagginn 0
22 Björn Vignir Ingason TK Bomban 0
21 Ingólfur Guðvarðarson TK Guttinn 0
20 Sigurður Gýmir Bjartmarssson TK Draumurinn 0
19 Eðvald Orri Guðmundsson BA Pjakkurinn 0
18 Sigurður Pálmason START Tímaur 0
17 Sævar Páll Stefánsson BA Járnkarlinn 0
16 Jóhann Gunnlaugsson TK Bleiki Pardusinn 0
15 Thelma Lind Árnadóttir TK Túttan 0
14 Grimur Helguson TK Brjála II 0
13 Gauti Moller BA Skuggi 0
12 Gunnlaugur Gunnlaugsson BA 2insane 0
11 Garðar Þór Garðarsson BA Eva 2.0 0

Sérútbúnir götubílar - Modified

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Helgi Heiðar Jóhannesson BA Ruddi 20
2 Brynjar Jökull Eliasson START Klakinn 17
3 Gunnar Pálmi Pétursson BA Snáðinn - Ford 42 15
4 Rognvaldur Stefán Helgason START Galdragulur 12
5 Finnur Bárðarson TK Kletturinn 10

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Helgi Heiðar Jóhannesson BA 20.0
1 Finnur Aðalbjörnsson BA 20.0
2 Brynjar Jökull Eliasson START 17.0
2 Bjarnþór Elíasson START 17.0
3 Gunnar Pálmi Pétursson BA 15.0
3 Andri Már Sveinsson TK 15.0
4 Rognvaldur Stefán Helgason START 12.0
4 Guðlaugur Sindri Helgason START 12.0
5 Finnur Bárðarson TK 10.0
5 Guðmundur Elíasson TK 10.0
6 Geir Evert Grìmsson TK 8.0
7 Daniel ingi Danielsson TK 6.0
8 Ingvar Jóhannesson TK 4.0
9 Jón Þór Jónsson BA 2.0
10 Jón Vilberg Gunnarsson TK 1.0
19 Sævar Páll Stefánsson BA 0.0
11 Gunnar Guðjónsson KK 0.0
24 Gunnlaugur Gunnlaugsson BA 0.0
23 Gauti Moller BA 0.0
22 Grimur Helguson TK 0.0
12 Jón örn ingileifsson BA 0.0
21 Thelma Lind Árnadóttir TK 0.0
20 Jóhann Gunnlaugsson TK 0.0
18 Garðar Þór Garðarsson BA 0.0
17 Sigurður Pálmason START 0.0
16 Eðvald Orri Guðmundsson BA 0.0
13 Björn Vignir Ingason TK 0.0
15 Sigurður Gýmir Bjartmarssson TK 0.0
14 Ingólfur Guðvarðarson TK 0.0