Íslandsmót í áttungsmílu. 3. umferð

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: thoraflosa@gmail.com

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur 3. umferð Íslandsmóts í áttungsmílu 1.ágúst 2026 á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
 A/G 8,70
 A/F 8,10
 A/E 7,50
 A/D 6,90
 A/C 6,30
 A/B 5,70
 A/A 5,10
 DS flokkur
 OF flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1.og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

10.30 móttaka keppenda hefst

10.45 skoðun hefst

11:00 pittur lokar

11.30 skoðun lýkur

11.45 keppendafundur

12.00 tímatökur hefjast

13.45 tímartökum lýkur

14:00 keppni hefst

17:00 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

17:30 kærufresti lýkur

Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut. 

Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki

Birt með fyrirvara um fjölda keppenda og þess háttar.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Öryggisfulltrúi: Vilberg Njáll Jóhannesson

Skoðunarmaður: Baldur Pálsson

Formaður dómnefndar: Arnar Smári Signýjarson

Dómnefnd 1: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Dómnefnd 2: Valdimar G Valdimarsson

Framkvæmdanefnd:
Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir, Vilberg Njáll Jóhannesson.

Dagsetningar

2. August 2026 kl: 11:00

Brautir og vegalengdir

Spyrnubraut BA
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Áttungsmíla

Íslandsmeistaramót - 3 umferð

Bikarmót í Spyrnu - 3. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 6. July 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 30. July 2026 kl: 17:00

Flokkar

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

A/C flokkur (6,30) bílar

A/D flokkur (6,90) bílar

A/E flokkur (7,50) bílar

A/F flokkur (8,10) bílar

A/G flokkur (8,70) bílar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda og Liðsmönnum

#3 - 2. August 2026 kl: 10:44
Slóði inná upplýsingatöflu betri útfærsla

https://docs.google.com/document/d/1qZs4ZCfQQ2JE801dYyVuuudgzkd4DMh2_TDs96jeiMk/edit?usp=sharing

afsakið hér er rétti slóðinn


Frá: Keppnisstjóri - Til: Allra

#2 - 2. August 2026 kl: 10:36
Slóði inná upplýsingatöflu betri útfærsla

https://docs.google.com/document/d/18XVeuzqFd0Peq9vhrLy4ZEAZFZ0ZGeGguWGVErELcOI/edit?tab=t.0

Slóði inná lifandi upplýsingatöflu.

 


Frá: Framkvæmdarnefnd - Til: Keppenda

#1 - 30. July 2026 kl: 22:40
Breytt dagsetning og tímasetning á Íslandsmóti í áttungsmílu

Sæl verið þið. 

Ákveðið hefur verið að færa keppnina sem átti að vera á laugardaginn yfir á sunnudaginn og keyra hana á undan bikarmóti sem var sett á þann dag. 

Þar af leiðandi þurfum við að hafa mætingu aðeins fyrr til að geta notað daginn í þetta. 

Uppfærð dagskrá er eftirfarandi:; 

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

07.30 móttaka keppenda hefst

07.45 skoðun hefst

08:00 pittur lokar

08.30 skoðun lýkur

08.45 keppendafundur

09.00 tímatökur hefjast

10.45 tímartökum lýkur

11:00 keppni hefst

14:00 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

14:30 kærufresti lýkur

Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut að lokinni umferð í bikarmóti.

Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR Íslandsmót í áttungsmílu. 3. umferð í mótröð Íslandsmeistaramót Spyrna - 3 umferð
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitirÍslandsmót í áttungsmílu. 3. umferð

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg 13 þann 01. ágúst 2026 kl: 14:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur 13, 603 Akureyri. 

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir,Vilberg Njáll Jóhannsson 

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í húsnæði Bílaklúbbur Akureyrar.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i A/G
5.1.1.a.ii A/F
5.1.1.a.iii A/E
5.1.1.a.iv A/D
5.1.1.a.v A/C
5.1.1.a.vi A/B
5.1.1.a.vii A/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MA/E
5.1.1.b.ii MA/D
5.1.1.b.iii MA/C
5.1.1.b.iv MA/B
5.1.1.b.v MA/A
5.1.1.b.vi G +
5.1.1.b.vii G -
5.1.1.b.viii B

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 30-07-2026- 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 15000. ( 12000 kr skráningargjald og 3000 kr AKÍS gjald) 

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/546.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Arnar Smári Signýjarson sem er formaður dómnefndar, Hrefna Björg Waage Björnsdóttir og Valdimar Geir Valdimarsson

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Vilberg Njáll Jóhannesson

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Björgvin Þórsson BA FORD MUSTANG 116
2 Stígur Andri Herlufsen KK Volvo Pv 544 95
3 Ágúst Halldórsson KK Chevrolet Thrillbilly´s racing 78
4 Sverrir Yngvi Karlsson BA Ford mustang HH Racing Team 69
5 Sigurbjörg Björgvinsdóttir KK Plymouth Sport Fury Team B.Racing 57

A/C flokkur (6,30) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Haukur Örn Halldorsson BS Chevy Pinto 116
2 Sigursteinn U.Sigursteinsson BA Ford Mustang 95
3 Ingimar Baldvinsson KK Ingimar Baldvinsson 78
4 Magnús Thomsen KK Monza 69
5 Einar Rafn Einarsson BA Einar Birgisson 57

A/D flokkur (6,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Kristján Stefánsson BKH Pontiac Firebird Thrillbilly´s racing 116
2 Egill stefán jóhannsson BA Ford mustang Slow Racing 95
3 Brynjar Nova Kristjánsson BA Chevy Nova 77
4 Birgir Helgason KK Chevrolet Camaro 69
5 Örn ingimarsson KK Chevrolet camaro 58

A/E flokkur (7,50) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurgeir Lúðvíksson BA Chevrolet caprice 115
2 Hafdís Alma Einarsdóttir BA Chevrolet Corvette 96
3 Karl Bóasson BA Ford mustang Slow Racing 77
4 Jóhann Sverrir Elfarsson BA AMC Javelin 68
5 Ágúst Jóhann Georgsson KK Mustang 59

A/F flokkur (8,10) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurður Karlsson BA Subaru 5300 114
2 Hinrik Máni BA Chevrolet Camaro 96
3 Eyþór Axel Júlíusson BA HH Racing Team 78
4 Pétur friðrik Steinþórsson BA Chevy Camaro 70
5 Kristófer Smári Elfarsson BA Ford mustang gt 57

A/G flokkur (8,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Jón Rúnar Rafnsson BA Dodge Dart GTS 340 116
2 Karitas Anna Fossberg BA Dodge Ram 94
3 Karles Randversson BA Nissan pathfinder 80
4 Sigþór Árni Sigurgeirsson BA Oldsmobil 68

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Thrillbilly´s racing KK 194.0
2 Slow Racing BA 172.0
3 HH Racing Team BA 147.0
6 Jón Rúnar Rafnsson BA 116.0
5 Björgvin Þórsson BA 116.0
4 Haukur Örn Halldorsson BS 116.0
7 Sigurgeir Lúðvíksson BA 115.0
8 Sigurður Karlsson BA 114.0
10 Hinrik Máni BA 96.0
9 Hafdís Alma Einarsdóttir BA 96.0
11 Sigursteinn U.Sigursteinsson BA 95.0
12 Stígur Andri Herlufsen KK 95.0
13 Karitas Anna Fossberg BA 94.0
14 Karles Randversson BA 80.0
15 Ingimar Baldvinsson KK 78.0
16 Brynjar Nova Kristjánsson BA 77.0
17 Pétur friðrik Steinþórsson BA 70.0
18 Magnús Thomsen KK 69.0
19 Birgir Helgason KK 69.0
20 Sigþór Árni Sigurgeirsson BA 68.0
21 Jóhann Sverrir Elfarsson BA 68.0
22 Ágúst Jóhann Georgsson KK 59.0
23 Örn ingimarsson KK 58.0
25 Einar Rafn Einarsson BA 57.0
26 Team B.Racing KK 57.0
24 Kristófer Smári Elfarsson BA 57.0