Íslandsmót í kvartmílu

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: ingimundur@shelby.is

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur 2. umferð Íslandsmóts í kvartmílu 2026 á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 8. ágúst 2026.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Kvartmíla íslandsmót
 K/G 13,90 /  K/F 12,90 /  K/E 11,90 /  K/D 10,90 /  K/C 9,90 /  K/B 8,90 /  K/A 7,90 /  K/X

Áttungsmíla bikar
DS flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:00 Tímatöku lýkur /hádegishlé
13:00 Útsláttarkeppni
15:30 Lokaúrslit birt

 

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Ingimundur Helgason

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Árni Már Kjartansson

Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Ragnarsson

Dómnefnd 1: Baldvin Hansson

Dómnefnd 2: Aron Óskarsson

Framkvæmdanefnd:
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson, Ingimundur Helgason

Dagsetningar

8. August 2026 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin
Lýsing:

Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði

Tegund/mótaröð

Kvartmíla

Íslandsmeistaramót - 2. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 19. July 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 5. August 2026 kl: 17:00

Flokkar

DS flokkur

K/A flokkur (7,90) bílar

K/B flokkur (8,90) bílar

K/C flokkur (9,90) bílar

K/D flokkur (10,90) bílar

K/E flokkur (11,90) bílar

K/F flokkur (12,90) bílar

K/G flokkur (13,90) bílar

K/X flokkur (án tímamarks) bílar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#1 - 12. July 2026 kl: 00:57
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Hy57Q

Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR
Íslandsmót í kvartmílu 2026 – 2. umferð

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í kvartmílu 2026 – 2. umferð.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 8. ágúst 2026 kl: 13:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 15 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
4.1.3.b er 402
 metra (1320 fet) löng í kvartmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Kvartmíla
5.1.1.a.i K/G 13,90 sek
5.1.1.a.ii K/F 12,90 sek
5.1.1.a.iii K/E 11,90 sek
5.1.1.a.iv K/D 10,90 sek
5.1.1.a.v K/C 9,90 sek
5.1.1.a.vi K/B 8,90 sek
5.1.1.a.vii K/A 7,90 sek
5.1.1.a.viii K/X 

5.1.1.b Áttungsmíla
5.1.1.b.i DS
5.1.1.b.ii OF

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 5. ágúst 2026 kl. 17:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 20.000.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátttaka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Hy57Q

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Ragnarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Baldvin Hansson og Aron Óskarsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Rafnar Snær Baldvinsson.

14.2.2 Skoðunarmaður er Árni Már Kjartansson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

DS flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ágúst Halldórsson KK Chevrolet Thrillbilly´s racing 0

K/A flokkur (7,90) bílar

K/B flokkur (8,90) bílar

K/C flokkur (9,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hilmar Jacobsen KK Mustang Saleen Crazy Racing 115
2 Haukur Baldvinsson KK Toyota Supra 96
3 Hilmar Þór Bess Magnússon KK Ford Ranger 79
4 Magnús Thomsen KK Monza 67
5 Johann Kjartansson KK 58

K/D flokkur (10,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ingimar Baldvinsson KK Chevrolet camaro 115
2 Eyþór Ingólfsson Melsteð KK Jeep grand cherokee srt8 93
3 Hafsteinn Valgarðsson KK Camaro SS 79
4 Sigurður Ólafsson KK Mustang GT Crazy Racing 71

K/E flokkur (11,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Breki Blær Rögnvaldsson KK Golf R 116
2 Benedikt Bergmann Svavarsson KK Chevrolet Camaro z/28 93
3 Hjorleifur Hilmarsson KK Jeep 79
4 Símon Hunter KK Polestar 4 67
5 Ágúst Jóhann Georgsson KK Mustang Thrillbilly´s racing 60
6 Viktor Tristan Árnason KK Chervolet Malibu 0

K/F flokkur (12,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Arnkell Ragnar Ragnarsson BA Plymouth Barracuda 115
2 Gunnlaugur Emilsson KK Cherokee SRT8 96
3 Fannar Örn Unnarsson KK Pontiac Firebird 0
4 Ingibjörg Erlingsdóttir KK Ford Mustang mace 0

K/G flokkur (13,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Natthaphong khamphan KK Bmw 530d xdrive 116
2 Björgvin Steinþórsson KK BMW 530D 94
3 Fawaz al shebli KK Fawaz 79

K/X flokkur (án tímamarks) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ingólfur Arnarson KK Dragster 10

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Crazy Racing KK 186.0
2 Natthaphong khamphan KK 116.0
3 Breki Blær Rögnvaldsson KK 116.0
4 Arnkell Ragnar Ragnarsson BA 115.0
5 Ingimar Baldvinsson KK 115.0
6 Gunnlaugur Emilsson KK 96.0
7 Haukur Baldvinsson KK 96.0
8 Björgvin Steinþórsson KK 94.0
9 Eyþór Ingólfsson Melsteð KK 93.0
10 Benedikt Bergmann Svavarsson KK 93.0
12 Hilmar Þór Bess Magnússon KK 79.0
13 Fawaz al shebli KK 79.0
14 Hjorleifur Hilmarsson KK 79.0
11 Hafsteinn Valgarðsson KK 79.0
16 Símon Hunter KK 67.0
15 Magnús Thomsen KK 67.0
17 Thrillbilly´s racing KK 60.0
18 Johann Kjartansson KK 58.0
19 Ingólfur Arnarson KK 10.0
20 Viktor Tristan Árnason KK 0.0
21 Ingibjörg Erlingsdóttir KK 0.0
22 Fannar Örn Unnarsson KK 0.0