Íslandsmót í áttungsmílu

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: rafnars@gmail.com

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur 4. umferð Íslandsmóts í áttungsmílu 2026 á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 6. september ( 22. ágúst 2026).
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Áttungsmíla íslandsmót
 A/G 8,70 /  A/F 8,10 /  A/E 7,50 /  A/D 6,90 /  A/C 6,30 /  A/B 5,70 /  A/A 5,10 /  DS / OF

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:00 Tímatöku lýkur /hádegishlé
13:00 Útsláttarkeppni
15:30 Lokaúrslit birt

 

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Rafnar Snær Baldvinsson

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Árni Már Kjartansson

Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson

Dómnefnd 1: Ari Halldor Hjaltsson

Dómnefnd 2: Arnar Ísfeld

Framkvæmdanefnd:
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson, Ingimundur Helgason

Dagsetningar

6. September 2026 kl: 11:00

Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin
Lýsing:

Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði

Tegund/mótaröð

Áttungsmíla

Íslandsmeistaramót - 4. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 20. July 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 3. September 2026 kl: 17:00

Flokkar

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

A/C flokkur (6,30) bílar

A/D flokkur (6,90) bílar

A/E flokkur (7,50) bílar

A/F flokkur (8,10) bílar

A/G flokkur (8,70) bílar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#1 - 9. August 2026 kl: 23:38
Upplýsingatafla keppninnar

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/j4L3F

Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR
Íslandsmót í áttungsmílu 2026 – 4. umferð

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í áttungsmílu 2026 – 4. umferð.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 22. ágúst 2026 kl: 13:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 15 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
4.1.3.b er 402
 metra (1320 fet) löng í kvartmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Áttungsmíla
5.1.1.a.i A/G 8,70 sek
5.1.1.a.ii A/F 8,10 sek
5.1.1.a.iii A/E 7,50 sek
5.1.1.a.iv A/D 6,90 sek
5.1.1.a.v A/C 6,30 sek
5.1.1.a.vi A/B 5,70 sek
5.1.1.a.vii A/A 5,10 sek
5.1.1.a.viii DS
5.1.1.a.ix OF

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 19. ágúst 2026 kl. 17:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 20.000.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátttaka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/j4L3F

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Arnar Smári Signýjarson, sem jafnframt er formaður hennar, Baldvin Hansson og Aron Óskarsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Rafnar Snær Baldvinsson.

14.2.2 Skoðunarmaður er Árni Már Kjartansson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

*DS flokkur bíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Magnús Aðalvíkingur Finnbjörnsson KK Chevy Corvette 115
2 Leifur Rósinbergsson KK Pontiac Trans Am 96
3 Valur Jóhann Vífilsson KK Vauxhall Victor 79

*OF flokkur bíla

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Grétar Jónsson KK Dragster 10
2 Ingólfur Arnarson KK Dragster 0
3 Magnús Bergsson BA 0

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigurbjörg Björgvinsdóttir KK Plymouth Sport Fury Team B.Racing 116
2 Ingimundur Helgason KK Ford Mustang Shelby GT500 Crazy Racing 95
3 Stígur Andri Herlufsen KK Volvo Pv 544 10
4 Ágúst Halldórsson KK Chevrolet Thrillbilly´s racing 0

A/C flokkur (6,30) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Haukur Örn Halldorsson BS Chevy Pinto 116
2 Ingimar Baldvinsson KK Ingimar Baldvinsson 95
3 Kristján Finnbjörnsson KK 79
4 Magnús Thomsen KK Monza 0
5 Johann Kjartansson KK 0

A/D flokkur (6,90) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Kristján Stefánsson BKH Pontiac Firebird Thrillbilly´s racing 116
2 Birgir Helgason KK Chevrolet Camaro Thrillbilly´s racing 95
3 Hjorleifur Hilmarsson KK Jeep 79
4 Ágúst Jóhann Georgsson KK Mustang Thrillbilly´s racing 68
5 Viktor Tristan Árnason KK Chervolet Malibu 57

A/E flokkur (7,50) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Benedikt Bergmann Svavarsson KK Camaro SS 116
2 Símon Hunter KK Polestar 4 93
3 Hafdís Alma Einarsdóttir BA Chevrolet Corvette 80
4 Ottó Páll Arnarson BA Chevrolet camaro 69
5 Sigurjón Andersen KK Plymouth Road Runner 57

A/F flokkur (8,10) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Pétur Örn Rafnsson KK Chevrolet Malibu 116
2 Eggert B KK Plymouth Duster 95
3 Gunnlaugur Emilsson KK Cherokee SRT8 79
4 Viktor ívan KK Jeep Srt8 67
5 Palmi Alfreðsson KK Chevrolet Camaro 58
6 Fannar Örn Unnarsson KK Pontiac Firebird 56

A/G flokkur (8,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Jón Rúnar Rafnsson BA Dodge Dart GTS 340 116
2 Guðvarður Jónsson BA 95

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
1 Thrillbilly´s racing KK 279.0
2 Pétur Örn Rafnsson KK 116.0
6 Benedikt Bergmann Svavarsson KK 116.0
5 Team B.Racing KK 116.0
4 Haukur Örn Halldorsson BS 116.0
3 Jón Rúnar Rafnsson BA 116.0
7 Magnús Aðalvíkingur Finnbjörnsson KK 115.0
8 Leifur Rósinbergsson KK 96.0
9 Guðvarður Jónsson BA 95.0
12 Crazy Racing KK 95.0
11 Ingimar Baldvinsson KK 95.0
10 Eggert B KK 95.0
13 Símon Hunter KK 93.0
14 Hafdís Alma Einarsdóttir BA 80.0
16 Hjorleifur Hilmarsson KK 79.0
15 Gunnlaugur Emilsson KK 79.0
17 Valur Jóhann Vífilsson KK 79.0
18 Kristján Finnbjörnsson KK 79.0
19 Ottó Páll Arnarson BA 69.0
20 Viktor ívan KK 67.0
21 Palmi Alfreðsson KK 58.0
22 Sigurjón Andersen KK 57.0
23 Viktor Tristan Árnason KK 57.0
24 Fannar Örn Unnarsson KK 56.0
26 Stígur Andri Herlufsen KK 10.0
25 Grétar Jónsson KK 10.0
27 Magnús Bergsson BA 0.0
29 Magnús Thomsen KK 0.0
30 Ingólfur Arnarson KK 0.0
28 Johann Kjartansson KK 0.0