KING OF THE STREET / OUTLAW KING 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: ingimundur@shelby.is

Lýsing

Kvartmíluklúbburinn heldur King of the Street / Outlaw King, bikarmót í áttungsmílu á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 30. ágúst 2026.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA/FIM ásamt viðaukum, reglum AKÍS, MSÍ og sérreglum keppninnar.

Keppnisfyrirkomulag
Áttungsmíla, ræst á jöfnu, Pro Tree ljós

Í götuflokkum skulu öll ökutæki vera götuskráð og á skráningarnúmerum.
Keyrðir verða 6 hringir (15km) á hringakstursbrautinni fyrir uppröðunarferðir.
Keppt verður í eftirfarandi götuspyrnuflokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Raðað er upp í "second chance" útsláttartré í hverjum flokki eftir viðbragðstíma í einni uppröðunarferð.

Götubílar
* Bílar 4 cyl
* Bílar 4x4
* Bílar 6 cyl
* Bílar 8 cyl
* Bílar 8 cyl+ 
* Bílar jeppar
* Bílar rafmagnsbílar

Götuhjól
* Götuhjól undir 800cc (G-)
* Götuhjól yfir 800cc (G+)
* Breytt götuhjól (B)

Að lokinni keppni í götuflokkum verður keppt um götukóngstitilinn

King of the Street - götubílar
Allir skráðir ökumenn götubíla eru gjaldgengir 
Raðað er upp í útsláttartré með útdrætti fyrir hverja umferð.
Beinn útsláttur

King of the Street - götuhjól
Allir skráðir ökumenn götuhjóla eru gjaldgengir 
Raðað er upp í útsláttartré með útdrætti fyrir hverja umferð.
Beinn útsláttur

Outlaw King - ofurbílar
Raðað er upp í "second chance" útsláttartré eftir viðbragðstíma í einni uppröðunarferð.

Verðlaun
Veitt verða bikarverðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum keppnisflokknum.
Bikarverðlaun fyrir King of the Street götubíla
Bikarverðlaun fyrir King of the Street götuhjóla
Bikarverðlaun fyrir Outlaw King

Besti 1/8 tími dagsins á götubíl
Besti 1/8 tími dagsins á götuhjóli
Besti 1/8 tími dagsins á Outlaw hurðabíl
Besti viðbragðstími á götubíl
Besti viðbragðstími á götuhjóli

Dagskrá

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:45 Keppendafundur
11:00 Æfingaferðir
12:30 Akstur á hringakstursbraut (15 km/6 hringir)
13:00 Uppröðunarferðir/tímataka 
14:00 Útsláttarkeppni
17:00 Lokaúrslit birt

Skipuleggjandi

KK

Keppnisstjóri: Ingimundur Helgason

Aðstoðarkeppnisstjóri: Sigurbjörg Björgvinsdóttir

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Árni Már Kjartansson

Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson

Dómnefnd 1: Aron Óskarsson

Dómnefnd 2: Ásta Andrésdóttir

Framkvæmdanefnd:
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason.

Dagsetningar

30. August 2026 kl: 13:00

Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin
Lýsing:

Spyrnubraut í Kapelluhrauni, Hafnarfirði

Tegund/mótaröð

Götuspyrna

Skráningargjöld

Skráning hefst: 9. August 2026 kl: 13:00

Skráningu lýkur: 28. August 2026 kl: 17:00

Flokkar

Bílar 4 cyl

Bílar 4x4

Bílar 6 cyl

Bílar 8 cyl

Bílar 8 cyl+

Jeppaflokkur

MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)

Outlaw hurðabílar

Rafmagnsbílar (EV)

SÉRREGLUR
King of the Street / Outlaw King

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir King of the Street 2026 / Outlaw King 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 30. ágúst 2026 kl: 14:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 16 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 4 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Götubílar
5.1.1.a.i Bílar 4 cyl
5.1.1.a.ii Bílar 4x4
5.1.1.a.iii Bílar 6 cyl
5.1.1.a.iv Bílar 8 cyl
5.1.1.a.v Bílar 8 cyl+ 
5.1.1.a.vi Bílar jeppar
5.1.1.a.vii Bílar rafmagnsbílar

5.1.1.b Ofurbílar
5.1.1.b.i Outlaw hurðabílar 

5.1.1.c Götuhjól
5.1.1.c.i Götuhjól undir 800cc (G-)
5.1.1.c.ii Götuhjól yfir 800cc (G+)
5.1.1.c.ii Breytt götuhjól (B)

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 27. ágúst kl. 17:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 13.000.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum
9.2.1.a í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.1.b í framrúðu að ofanverðu horni farþegamegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Útsláttarkeppni klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að lokinni einni tímtökuferð er skv. "second chance" fyrirkomulagi í öllum flokkum. 
10.3.3.a Raðað er í útsláttartré flokka skv. viðbragðstíma í tímatökuferð.

10.3.4 Uppröðun í King of the Street lokakeppni er skv. útdrætti og er beinn útsláttur. 
10.3.4.a Raðað er í útsláttartré lokakeppni skv. útdrætti fyrir allar umferðir.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni: http://nn.is/Ed43S

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Aron Óskarsson og Ásta Andrésdóttir.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.

14.2.2 Skoðunarmaður er Árni Már Kjartansson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

Bílar 4 cyl

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Eyjolfur mar einarsson KK Honda integra type r 0
2 Fawaz al shebli KK Fawaz 0
3 Gabríel Máni Mikaelsson AÍH Mazda RX-8 1.8T 0

Bílar 4x4

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Einar Ágúst Ásmundsson KK Subaru STI 0
2 Guðmundur Hjalti Sigurðsson KK Mitsubishi 3000GT VR4 0
3 Edvard Valgeirsson KK BMW 540 0
4 Brynjar Smári Þorgeirsson KK BMW M5 0
5 Kjartan Hansson KK MMC Evo X 0

Bílar 6 cyl

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Haukur Baldvinsson KK Toyota Supra 0

Bílar 8 cyl

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Ágúst Halldórsson KK Pontiac Thrillbilly´s racing 0
2 Jóhann Björgvinsson BA Rambler Rouge 0
3 Ágúst Jóhann Georgsson KK Mustang Thrillbilly´s racing 0
4 Eggert B KK Plymouth Duster 0
5 Ingólfur Arnarson KK Ch. Corvette 0
6 Birgir Helgason KK Chevrolet Camaro Thrillbilly´s racing 0
7 Sigurjón Andersen KK Plymouth Road Runner 0
8 Gunnar Ólafur Gunnarsson KK Plymouth Belvedere 0
9 Kristján Stefánsson BKH Pontiac Firebird Thrillbilly´s racing 0
10 Auðunn Jónsson KK Ford Pickup 0
11 Guðmundur A Kristjánsson KK Mustang 0
12 Aron Logi Halldórsson KK Camaro 0

Bílar 8 cyl+

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Viktor Tristan Árnason KK Chervolet Malibu 0
2 Eyþór Ingólfsson Melsteð KK Jeep grand cherokee srt8 0
3 Johann Kjartansson KK Pontiac Trans Am 0
4 Hjorleifur Hilmarsson KK Jeep 0
5 Hilmar Jacobsen KK Mustang Saleen Crazy Racing 0
6 Sigurður Ólafsson KK Mustang GT Crazy Racing 0
7 Ingimar Baldvinsson KK Ingimar Baldvinsson 0
8 Sigurbjörg Björgvinsdóttir KK Dodge Dakota Team B.Racing 0
9 Hafsteinn Valgarðsson KK Camaro SS 0

Jeppaflokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Gunnlaugur Emilsson KK Cherokee SRT8 0

MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Davið Þór Einarsson KK Suzuki busa 0

MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)

Outlaw hurðabílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Victor Hjörvarsson KK Plymouth Sport Fury Team B.Racing 0
2 Leifur Rósinbergsson KK Pontiac Trans Am 0
3 Valur Jóhann Vífilsson KK Vauxhall Victor 0

Rafmagnsbílar (EV)

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sveinn Elías Elíasson KK Taycan turbo S 0

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
16 Davið Þór Einarsson KK 0.0
31 Team B.Racing KK 0.0
30 Thrillbilly´s racing KK 0.0
29 Viktor Tristan Árnason KK 0.0
28 Jóhann Björgvinsson BA 0.0
27 Crazy Racing KK 0.0
26 Haukur Baldvinsson KK 0.0
25 Eggert B KK 0.0
24 Eyþór Ingólfsson Melsteð KK 0.0
23 Eyjolfur mar einarsson KK 0.0
22 Johann Kjartansson KK 0.0
21 Ingólfur Arnarson KK 0.0
20 Einar Ágúst Ásmundsson KK 0.0
19 Hjorleifur Hilmarsson KK 0.0
18 Fawaz al shebli KK 0.0
17 Leifur Rósinbergsson KK 0.0
1 Sveinn Elías Elíasson KK 0.0
15 Gunnlaugur Emilsson KK 0.0
14 Valur Jóhann Vífilsson KK 0.0
13 Guðmundur Hjalti Sigurðsson KK 0.0
12 Sigurjón Andersen KK 0.0
11 Gunnar Ólafur Gunnarsson KK 0.0
10 Ingimar Baldvinsson KK 0.0
9 Gabríel Máni Mikaelsson AÍH 0.0
8 Auðunn Jónsson KK 0.0
7 Guðmundur A Kristjánsson KK 0.0
6 Edvard Valgeirsson KK 0.0
5 Hafsteinn Valgarðsson KK 0.0
4 Brynjar Smári Þorgeirsson KK 0.0
3 Kjartan Hansson KK 0.0
2 Aron Logi Halldórsson KK 0.0