Skráningu lýkur 25.Ágúst klukkan 17:00
Skráningargjald : 24.000 kr án akís gjalds
Unglingar : 12.000 kr án akís gjalds
Ekki þarf að setja afsláttarkóða fyrir unglinga, rétt verð kemur þegar flokkur er valin
Minni á reglur Rallycross
https://reglur.akis.is/Codes/125/View - Rallycross 2026 og sérreglur sem finna má á þessari síðu
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Hönnu Rún S:692 9594 eða hannarunragnars@gmail.com
7:30 Svæðið opnar
Þegar bíll er tekinn af kerru eða mætir þarf hann að keyra hægan hring til að athuga hvort kubbur virki(mikilvægt að vera búinn að setja kubbinn í ) áður en lagt er í stæði
8:00 Mætingarfrestur liðinn - ATH mæting seinna gæti leitt til refsingar.
8:00 - 10:00 Skoðun - Tímataka
Skoðun fer fram í stæði, ökumaður gerir sig tilbúinn að fara beint í tímatöku ef bíllinn öðlast skoðun.
Fundur með keppendum eftir tímatöku
10:30 Starfsmannafundur
11:00 keppni hefst
Keyrum heat 1 og 2, tökum ca 40 min hlé og svo verða keyrð heat 3 og 4
18:30 áætluð keppnislok
AÍH
Keppnisstjóri: Hanna Ragnarsdóttir
Öryggisfulltrúi: Magnús Ingolfsson
Skoðunarmaður: Kristinn Valgeir Sveinsson
Formaður dómnefndar: Rafnar Snær Baldvinsson
Dómnefnd 1: Sigurður Arnar Pálsson
Dómnefnd 2: Jökull Ýmir Guðmundsson
Framkvæmdanefnd:
AÍH
30. August 2026 kl: 11:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Rallycross
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 7. August 2026 kl: 09:40
Skráningu lýkur: 25. August 2026 kl: 17:00
1400 flokkur: 24000 kr.-
2000 flokkur: 24000 kr.-
4x4 Non Turbo: 24000 kr.-
Opinn flokkur: 24000 kr.-
Standard 1000cc flokkur: 24000 kr.-
Unglingaflokkur: 12000 kr.-
Unglingaflokkur - Byrjenda: 12000 kr.-
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Unglingaflokkur - Byrjenda
https://docs.google.com/document/d/1mg7fGdWA3ubd-YEtYguHRV5LnvSTtL5QRvuB_amJmyk/edit?usp=sharing
SÉRREGLUR 5.Umferð Íslandsmóti Rallycrossi 2026
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir 5.Umferð í Íslandsmóti í Rallycrossi 2026.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH 850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is þann 30. Ágúst 2026 kl: 11:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Hanna Rún Ragnarsdóttir og Guðmundur Örn Þorsteinsson.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði AÍH í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður Réttsælis um brautina, ef þessi regla breytist mun það koma fram á upplýsingatöflunni.
4.1.3 Brautin er 850 metra löng4.1.4 Hver riðill er meira en 5 hringir, eða u.þ.b. 4.650 m.
4.1.4. a Þegar fyrsta ökutæki í riðli ekur í 6. skipti yfir endalínu er flaggað á það til merkis um lok riðils.
4.1.4. b Öll önnur ökutæki í riðlinum verða flögguð út í næsta sinn sem þau fara yfir endalínu.
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er pitturinn, nema að annað sé tekið fram.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur, ökumenn mega ganga frá bílum á kerrur, skipta um dekk en ekki eiga neitt við bílana að öðru leiti.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pitt.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita á upplýsingatöflu eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið. – Brjóti keppandi Parc Fermé reglu er hann dæmdur úr keppni.
4.3.4 Viðgerðir aðrar en að skipta út sprungnu dekki eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
5.1a Lágmarksskráning í byrjendaflokk eru 3 skráningar, ef ekki næst lágmark í þann flokk verður hann sameinaður almenna Unglingaflokknum.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.mot.akis.is
5.4 Skráningu lýkur þriðjudaginn 25.ágúst 2026 17:00
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt skráningargjald án Akís gjalds er kr. 24.000
5.6a Unglingaflokkur greiðir án Akís gjalds kr. 12.000 verð reiknast sjálfkrafa fyrir unglingaflokk
5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.1 þátttökurétt í keppninni;
5.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS bætist svo við.
5.8 Leyfður fjöldi aðstoðarbíla(servicetækja) er 1 fyrir hvern skráðan keppnisbíl.
GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu og tryggingaviðauka.
6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara gegn 3.aðila.
6.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófi er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
7.1.2 Hafi ökumaður misst ökuréttindi má hann ekki keppa.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu rafrænu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR
8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur, og skal hann vera kominn í áður en farið er í öryggisskoðun. Ekki er hægt að ábyrgjast virkni tímatökukubbs.
8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
8.2.a Virki ekki tímasendir áður en tímatökur hefjast er ekki hægt að leyfa ökutæki að keyra auka tímatökuhring og fengi viðkomandi þá max tíma.
8.2.b Tímatökusendir á að vera staðsettur í hægri hjólaskál bíls.
8.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
8.4 Hægt er að styðjast við tímatökubúnað í keppni ef dómnefnd þykir ástæða til.
8.5 Ef tímatökubúnaður virkar ekki, áskilur keppnisstjóri sér að nota skeiðklukku í tímatöku
GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Öll ökutæki sem standast skoðun á keppnisdegi fá heimild til að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur hefjast strax að lokinni öryggisskoðun. Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.a.i Í tímatökum ekur hvert ökutæki einn tímamældan hring
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil Kl 11:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1. heat ræðst af grein 3.8.5 í rallycross reglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þeirri röð sem keppnistjóri ákveður.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.
10.3.5 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.9.3 Keppnisgreinareglum fyrir rallycross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.
10.3.5.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.
10.3.5.b Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.
Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.
10.3.5.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.
10.3.5.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.
10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 10 verður þeim skipt upp í riðla.
10.3.6.a Ef fjöldi ökutækja er 11-20:
10.3.6.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.
10.3.6.b Ef fjöldi ökutækja er 21-30:
10.3.6.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.
10.3.6.b.ii Í A úrslit komast 10 ökutæki sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-10 í lokaúrslitum.
10.3.6.b.iii Í B úrslit komast 10 ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 11-16 í lokaúrslitum.
10.3.6. iiiii Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.
10.3.6. iiiiii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan. Forráðamaður skal fylgja unglingi á þennan fund. Keppandi og/eða forráðamaður þurfa að skrá sig við komu á fund hjá keppnisstjórn.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður rafræn inná skráningarforminu.
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4A Timamörk kæru eru 15 min eftir að riðli lýkur
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
11.6 Hver sá sem áreitir keppnisstjóra, dómara eða aðra starfsmenn keppninnar eftir að keppni lýkur geta fengið áminningu á þann keppenda sem hann fer fyrir.
GREIN 13 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Rafnar Snær Baldvinsson sem jafnframt er formaður hennar, Sigurður Arnar Pálsson og Jökull Ýmir Guðmundsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Hanna Ragnarsdóttir.
14.2.1a Aðstoðar keppnisstjóri
14.2.2 Skoðunarmaður er Kristinn Sveinsson, ásamt aðstoðarmönnum.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Magnús Ingólfsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Eru staðsettir umhverfis brautina og á ráslínu.
14.5.1.a. Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
| GREIN 3.11 | STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA | |
| 3.11.1 |
Sá ökumaður sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr öllum keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari. |
|
| 3.11.2 |
Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum hvers flokks samkvæmt eftirfarandi töflu:
|
|
| 3.11.3 |
Að auki eru gefin stig til Íslandsmeistara hvers flokks þannig að fyrir: |
|
| 3.11.3.a |
sæti í úrslitum riðla eru gefin stig samkvæmt eftirfarandi töflu:
|
|
| 3.11.3.b |
fyrir hraðasta hring í tímatökum eru gefin 3 stig til Íslandsmeistara, fyrir næst hraðasta hring 2 stig og þriðja hraðasta hring 1 stig. |
Grein 16.0 Refsingar og fleira
Mótmæli og kærur eru teknar fyrir samkvæmt reglum Akís og sérreglum keppninar.
Aðeins keppandi (ef keppandi skráði sig sjálfur í keppni)eða samkeppnisaðili getur sent inn kærur og áfrýjun.
Allar kærur verða vera afhentar á réttu formi samkv. Reglum Akís (Kærur skulu gerðar samkvæmt ISC. Undirritaðar kærur ásamt kærugjaldi skulu afhentar keppnisstjóra eða staðgengli hans innan tilsetts kærufrests. Kærugjald er samkvæmt gjaldskrá Akís, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar.) hún verður að vera undirrituð af keppanda og verður að innihalda hvaða reglu/brot er verið að kæra.
Hægt er að skjóta málum til almennrar dómnefndar AKÍS til samræmis við reglur
Allar kærur verða vera lagðar fram með kærugjaldi sem er 50.000 kr.
Ef kæru upphæð fylgir ekki með, er kæra ekki tekin gild.
Kæra sem felur í sér rif á bíl er aukagjald: 40.000 kr.
Kostnaður sem verður vegna rif á bíl eru borguð af:
Þeim sem leggja fram kæru, ef hún á ekki við rök að styðjast
Keppanda, ef kæra á við rök að styðjast
Tímamörk til að leggja fram kærur:
Kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit eru birt, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar
Mótmæli um að ökutæki standist ekki reglur í flokk verða vera komin fram ekki seinna en 15mín eftir að riðli lauk (úrslit úr riðli).
Mótmæli um gang keppninnar, úrslit eða dóma, verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að riðli lýkur sem við á.
Mótmæli um ákvörðun brautarstjóra verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að ákvörðunin var auglýst á uppl.töflu.
Mótmæli geta verið tekin fyrir eftir tímamörk, einungis ef Dómnefnd telur að ástæðan á töfini sé hlutlæg og sanngjörn
Tímasektir og ekki gefið rásleyfi útaf komið of seint á ráslínu er ekki hægt að áfrýja
Áfryjanir: eru samkv reglum Akís og sérreglum keppninnar
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Zilvinas Stonys | AÍH | hyundai i20 | 53 | |
| 2 | Bergrún Fönn Alexandersdóttir | AÍH | Suzuki Swift | 45 | |
| 3 | Ívar Már Sigurpálsson | AÍH | Toyota Corolla | 31 | |
| 4 | Jón Birkir Árnason | AÍH | Toyota Yaris | 28 | |
| 5 | Pálmar Henry Brynjarsson | AÍH | Chevrolet Spark 2012 | 25 | |
| 6 | Gunnar Örn Jóhannsson | AÍH | Honda Civic | 23 | |
| 7 | Sindri Már Sigrúnarson | AÍH | Toyota Yaris | 22 | |
| 8 | Guðni Þór Jósepsson | BA | Volkswagen Polo | 20 | |
| 9 | Sólveig Lind Magnúsdóttir | AÍFS | Chevrolet Spark 2012 | 17 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Hilmar Pétursson | AÍFS | Toyota corolla | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Kristinn Örn Jakobsson | AÍH | Subaru Impreza | 46 | |
| 2 | Þórir Mar Ingvason | TK | Honda CRV | 39 | |
| 3 | Sölvi örn Heiðarsson | AÍH | Subaru impreza | 39 | |
| 4 | Halldór Ólafsson | AÍH | Subaru Impreza | 31 | |
| 5 | Þröstur Jarl Sveinsson | AÍH | Subaru impreza | 31 | |
| 6 | Heiðar Örn Sverrisson | AÍH | subaru impreza | 28 | |
| 7 | Omar Abraham | KK | Kubbur | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Steinar Nòi kjartansson | AÍH | Dodge Stealth | 48 | |
| 2 | Jakob Pálsson | AÍH | Subaru Impreza | 42 | |
| 3 | Ágúst Sverrir Danielsson | KK | MMc Lancer Evo4 | 39 | |
| 4 | Gedas Karpavicius | AÍH | WV Polo | 9 | |
| 5 | Konrad Kromer | AÍH | Audi a4 | 8 | |
| 6 | Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | Subaru Impreza | 0 | |
| 7 | Eva arnet Sigurðardóttir | AÍH | Subaru Impreza | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Guðmundur Gauti Ívarsson | AÍH | Toyota Aygo | 45 | |
| 2 | Birkir Rútsson | AÍH | Kia Picanto | 44 | |
| 3 | Valdimar Kristinn Árnason | AÍH | Peugeot 107 | 44 | |
| 4 | Yngvi Rúnar Högnason | AÍH | Toyota Aygo 1000cc | 43 | |
| 5 | Hergill Henning Kristinsson | AÍH | Toyota aygo | 42 | |
| 6 | Tómas Orri Kjartansson | AÍH | yaris | 31 | |
| 7 | Skuli Darri | AÍFS | yaris | 29 | |
| 8 | Helena Ósk Elvarsdóttir | AÍH | Toyota Aygo | 27 | |
| 9 | Deimante Konovaite | AÍH | Toyota Aygo | 27 | |
| 10 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | Toyota Aygo | 26 | |
| 11 | Adam Stefaánsson | AÍH | Toyota aygo | 26 | |
| 12 | Jóhanna L'orange Magnúsdóttir | AÍH | Toyota Yaris | 24 | |
| 13 | Erla Sigríður Sigurðardóttir | AÍH | Toyota Yaris | 17 | |
| 14 | Brynhildur Sesselja Hafsteinsdóttir | AÍH | yaris | 15 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Alex Jamil Atlason | AÍH | Peugeot 108 | 50 | |
| 2 | Elías Páll Pálsson | AÍH | Toyota Aygo | 45 | |
| 3 | Elvar Smári Reynirsson | AÍH | Toyota aygo | 39 | |
| 4 | Alexander Breki Þrastarson | AÍH | Toyota Yaris | 37 | |
| 5 | SIgrún Helga Ragnarsdóttir | AÍH | Citroen C1 | 35 | |
| 6 | Sigurður Almar Guðnason | AÍFS | Toyota Aygo | 30 | |
| 8 | Ari Fritz Ingvarsson | AÍH | Toyota Aygo | 29 | |
| 7 | Guðni Hrafn Baldursson | BA | Toyota Yaris | 29 | |
| 9 | Siggeir Sölvi Benediktsson | TK | Toyota Aygo | 27 | |
| 10 | Eyþór Atli Jóhannsson | AÍH | Toyota Aygo | 19 | |
| 11 | Elísa Rún Hilmarsdóttir | AÍH | Toyota Aygo 1.0 | 17 | |
| 12 | Sigurður Ágúst Alfreðsson | BA | Toyota Yaris | 17 | |
| 13 | Þröstur Breki Hlífarsson | AÍH | Yaris | 16 | |
| 14 | Sighvatur Óli Þorsteinsson | AÍH | Toyota Aygo | 16 | |
| 15 | Elísabeth Ástrós Geirsdóttir | AÍH | Toyota Aygo | 12 | |
| 16 | Friðrik Líndal Antonsson | AÍH | Vw Polo R | 11 | |
| 17 | Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir | AÍH | Toyota Aygo | 9 | |
| 18 | Edda Björk Guðnadóttir | AÍH | Toyota Aygo | 4 | |
| 19 | Leó Geirsson | AÍH | toyota yaris | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Brynjar Þór Hannesson | AÍH | Toyota Aygo | 0 | |
| 2 | Bjarmi Dagur Pálsson | AÍH | Toyota Yaris 1000 rallycross | 0 | |
| 3 | Erla Björt Árnadóttir | AÍH | Toyota Yaris | 0 | |
| 4 | Margrét Rún Sighvatsdóttir | AÍH | Toyota aygo | 0 | |
| 5 | Kristján ísak jónsson | AÍH | Toyota Aygo 2005 | 0 |