Bikarmót BA í spyrnu, 5 umferð

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: thoraflosa@gmail.com

Lýsing

Bílaklúbbur Akureyrar heldur fimmta umferð bikarmóts  í áttungsmílu  10. september . 2026 á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

Bílar
 A/G 8,70
 A/F 8,10
 A/E 7,50
 A/D 6,90
 A/C 6,30
 A/B 5,70
 A/A 5,10
 DS flokkur
 OF flokkur
Mótorhjól  
 G+ flokkur
 G- flokkur
 B flokkur
 O flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1.og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

17:30 móttaka keppenda hefst

17:45 skoðun hefst

18:00 pittur lokar

18:15 skoðun lýkur

18:30 keppendafundur

19:00 tímatökur hefjast

19:50 tímartökum lýkur

20:00 keppni hefst

21:30 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

22:00 kærufresti lýkur

Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut. 

Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki

Birt með fyrirvara um fjölda keppenda og þess háttar.

Skipuleggjandi

BA

Keppnisstjóri: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

Öryggisfulltrúi: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir

Skoðunarmaður: Baldur Pálsson

Formaður dómnefndar: Valdimar G Valdimarsson

Dómnefnd 1: Guðbjörg Jónsdóttir

Dómnefnd 2: Vilberg Njáll Jóhannesson

Framkvæmdanefnd:
Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir, Hrefna Björg Waage, Arnar Smári Signyjarson

Dagsetningar

11. September 2026 kl: 18:00

Brautir og vegalengdir

Spyrnubraut BA
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Áttungsmíla

Bikarmót í Spyrnu - 5. umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 19. August 2026 kl: 10:00

Skráningu lýkur: 8. September 2026 kl: 17:00

Flokkar

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

A/C flokkur (6,30) bílar

A/D flokkur (6,90) bílar

A/E flokkur (7,50) bílar

A/F flokkur (8,10) bílar

A/G flokkur (8,70) bílar

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdarnefnd - Til: Allra keppenda

#4 - 10. September 2026 kl: 17:01
Frestun til morguns

Frá

Keppnisstjóra

   

Til

Allra

Skjal

4

Dagsetning

10.09.2026

Klukkan

16:50

Keppni er frestað til föstudagsins 11.09´26

16:30 móttaka keppenda hefst

16:45 skoðun hefst

17:00 pittur lokar

Skoðun líkur

Tímatökur

Keppendafundur

Keppni hefst þegar "Bössinn" er tilbúin fyrir keppni

20:30 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

21:00 kærufresti lýkur


Frá: Frá Keppnisstjóra - Til: Allra

#3 - 8. September 2026 kl: 09:05
Áríðandi tilkynning

Frá

Keppnisstjóra

   

Til

Allra

Skjal

3

Dagsetning

08.09.2026

Klukkan

09:10

það komu nokkur nei um að flýta keppninni þannig að við stefnum bara á upphaflega planið sem er á fimmtudaginn næstkomandi og vonum það besta. Við höfum stundum verið heppin.

16:30 móttaka keppenda hefst

16:45 skoðun hefst

17:00 pittur lokar

17:15 skoðun lýkur

17:30 keppendafundur

18:00 tímatökur hefjast 

18:50 tímartökum lýkur

19:00 keppni hefst

20:30 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

21:00 kærufresti lýkur

kveðja keppnisstjóri


Frá: Keppnisstjóra - Til: Keppenda

#2 - 3. September 2026 kl: 13:04
Tilkynning vegna veðurs

 

Eins og er er ekki útlit fyrir að brautin okkar verði nægilega þurr í dag til að keyra keppnina. Loka ákvörðun verður birt um klukkan 15:00 Ef það verður ákveðið að fresta keppni þá horfum við á næsta fimmtudag 10. sept og þá með sömu dagskrá og tímasetningum. Annars er þá laugardagurinn 12.september sama dag og sandspyrnan er.

Við munum opna aftur fyrir skráningu ef keppni frestast í dag

 

Keppnisstjóri


Frá: framkvæmdarnefnd - Til: Keppenda

#1 - 1. September 2026 kl: 16:40
Breytt dagskrá

Tilkynning til keppenda. 

Ákveðið hefur verið að hífa dagskránna upp um einn klukkutíma frá því sem var auglýst í ljósi þess að það er farið að dimma ansi hratt á kvöldin. 

Dagskráin verður eftirfarandi.

16:30 móttaka keppenda hefst

16:45 skoðun hefst

17:00 pittur lokar

17:15 skoðun lýkur

17:30 keppendafundur

18:00 tímatökur hefjast

18:50 tímartökum lýkur

19:00 keppni hefst

20:30 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

21:00 kærufresti lýkur


Skoða allar færslur

SÉRREGLUR Bikarmót BA í spyrnu, 5 umferð í mótröð Bikarmót í Spyrnu -
 

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Bikarmót BA í spyrnu, 5 umferð.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Spyrnubraut BA, Hlíðarfjallsvegi 13 þann 13. sept  2026 kl: 20:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur 13, 603 Akureyri. 

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir, Hrefna Björg Waage, Arnar Smári Signyjarson

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í húsnæði Bílaklúbbs Akureyrar.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i A/G
5.1.1.a.ii A/F
5.1.1.a.iii A/E
5.1.1.a.iv A/D
5.1.1.a.v A/C
5.1.1.a.vi A/B
5.1.1.a.vii A/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MA/E
5.1.1.b.ii MA/D
5.1.1.b.iii MA/C
5.1.1.b.iv MA/B
5.1.1.b.v MA/A
5.1.1.b.vi G +
5.1.1.b.vii G -
5.1.1.b.viii B

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-09-01 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 12.000 og ofan á það leggst keppnisskírteini AKÍS, 3000 kr. 

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 19:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 20:00. Ræst úr kyrrstöðu

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/591.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Arnar Smári Signýjarson, sem jafnframt er formaður hennar, Guðbjörg Jónsdóttir og Vilberg Njáll Jóhannesson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.

14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Úrslit

*DS flokkur bíla

*OF flokkur bíla

A/A flokkur (5,10) bílar

A/B flokkur (5,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Haukur Örn Halldorsson BS Chevy Pinto 0
2 Karl óskar Geirsson BA Ford mustang HH Racing Team 0
3 Björgvin Þórsson BA FORD MUSTANG 0

A/C flokkur (6,30) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Einar Rafn Einarsson BA Einar Birgisson 0
2 Brynjar Nova Kristjánsson BA Chevy Nova 0
3 Sigursteinn U.Sigursteinsson BA 0

A/D flokkur (6,90) bílar

A/E flokkur (7,50) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hafdís Alma Einarsdóttir BA Chevrolet Corvette 0
2 Karl Bóasson BA Ford mustang Slow Racing 0
3 Damian Ksepko BA Subaru Impreza 0

A/F flokkur (8,10) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Hinrik Máni BA Chevrolet Camaro 0
2 Sigurður Karlsson BA Subaru 5300 0
3 Pétur friðrik Steinþórsson BA Chevy Camaro 0
4 Eyþór Axel Júlíusson BA HH Racing Team 0

A/G flokkur (8,70) bílar

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Óskar Þór Baldursson BA Volvo xc90 0
2 Jón Rúnar Rafnsson BA Dodge Dart GTS 340 0
3 Árni Jóhann Arnarsson BA Volvo S60 0
4 Sigþór Árni Sigurgeirsson BA Oldsmobil 0
5 Kristofer Máni Gretarsson BA Audi e-tron 55 quattro 0

Liðakeppni

Sæti Nafn Félag Stig
9 Björgvin Þórsson BA 0.0
17 Óskar Þór Baldursson BA 0.0
16 Slow Racing BA 0.0
15 HH Racing Team BA 0.0
14 Jón Rúnar Rafnsson BA 0.0
13 Árni Jóhann Arnarsson BA 0.0
12 Hinrik Máni BA 0.0
11 Damian Ksepko BA 0.0
10 Kristofer Máni Gretarsson BA 0.0
1 Sigursteinn U.Sigursteinsson BA 0.0
8 Pétur friðrik Steinþórsson BA 0.0
7 Hafdís Alma Einarsdóttir BA 0.0
6 Brynjar Nova Kristjánsson BA 0.0
5 Sigurður Karlsson BA 0.0
4 Einar Rafn Einarsson BA 0.0
3 Haukur Örn Halldorsson BS 0.0
2 Sigþór Árni Sigurgeirsson BA 0.0