Kvartmíluklúbburinn heldur bikarmót í tímaati á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 16. ágúst 2026.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Ökutæki af öllum gerðum Porsche mega taka þátt.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:00 Pittur opnar / mæting keppenda opin til kl. 11:00
09:15 Skoðun hefst
11:00 Pittur lokar
11:48 Skoðun lýkur
11:50 Keppendafundur
13:15 Uppröðunarhringur
13:20 Ræsing sprettaksturs
14:00 Sprettakstri lýkur (áætlað)
14:10 Bráðabirgðaúrslit birt
14:10 Verðlaunaafhending
14:40 Lokaúrslit birt
KK
Keppnisstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Ingimundur Helgason
Skoðunarmaður: Einar Örn Reynisson
Formaður dómnefndar: Viktor Böðvarsson
Dómnefnd 1: Aðalsteinn Símonarson
Dómnefnd 2: Rafnar Snær Baldvinsson
Framkvæmdanefnd:
Baldvin Hansson og Ingimundur Helgason
16. August 2026 kl: 11:50
Hringakstursbraut KK
Lýsing: 2412 metrar
Tímaat
Skráning hefst: 12. August 2026 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 15. August 2026 kl: 12:00
Porsche
Sérreglur Sprettaksturskeppni KK 2026
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Sprettaksturskeppni KK 2026 og er haldin á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir tímaat (með þeim breytingum og frávikum sem lýst er í þessum sérreglum), og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni sunnudaginn 16. ágúst 2026.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 4 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson og Ingimundur Helgason.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ OG KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er um það bil 2412 metra löng.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Pittstjóri og aðstoðarmenn hans stýra aðgangi að pitti, niðurröðun og öðru sem þurfa þykir á pittsvæði.
4.2.2 Keppendum er heimilt að aka í pitt hvenær sem þeir telja þörf á því á meðan á aksturslotum stendur.
4.2.3 Aka má úr pitti og inn á brautina logi grænt ljós (eða reist grænt flagg) við pitt útkeyrsluna.
4.2.3.a Aldrei má aka úr pitti ef rautt ljós (eða rautt flagg) er við pitt útkeyrsluna nema ökumaður fái skýra bendingu um annað frá starfsmanni keppninnar.
4.2.4 Hámarkshraði á pittakrein er 50 km á klst. og í pitti er 15 km á klst hámarkshraði.
4.2.4.a Hámarkshraðatakmörkun tekur gildi um leið og komið er að hámarkshraðaskilti á pittakrein og gildir fram að næsta skilti eða útkeyrsluhliði inn á brautina úr pittinum.
4.2.5 Hvert ökutæki á ákveðið stæði í pittinum sem pittstjóri úthlutar keppanda við mætingu á keppnissvæðið.
GREIN 4.3 SKILYRT AKSTURSHLÉ OG LOKAÐ PITTSVÆÐI (PARC FERMÉ)
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar sprettakstri lýkur.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Ökumaður skal taka að minnsta kosti eitt 2 mínútna samfellt hlé frá akstri á meðan á sprettaksturslotunni stendur, svokallað skilyrt aksturshlé.
4.3.4.a Skilyrtu aksturshléi skal varið inni í sérstöku merktu lokuðu pittsvæði (Parc Fermé) sem kynnt verður keppendum á keppendafundi.
4.3.4.b Óheimilt er að vinna við ökutækið, breyta því eða þjónusta á nokkurn hátt í skilyrtu hléi.
4.3.4.c Þjónustulið má ekki koma inn í lokaða pittsvæðið á meðan á skilyrtu aksturshléi stendur.
4.3.4.d Ekki er heimilt að koma með búnað af nokkru tagi að ökutækinu á meðan það er í lokuðu pittsvæði.
4.3.5 Tímamismunur keppenda við ræsingu er jafnaður út í skilyrta aksturshléinu á þann hátt að sekúndum til jafns við bil á milli ökutækja í ræsingu er bætt við biðtíma hvers ökutækis fyrir hvert ökutæki sem á eftir því fór í brautina við upphaf keppni.
4.3.5.a Eftir skilyrt aksturshlé allra ökutækja verða þau því komin með sambærilegan rástíma.
4.3.6 Þar sem skilyrt aksturshlé er 2 mínútur samfellt verður að taka það tímanlega til að renna ekki út á tíma og komast ekki út úr pitti til að aka yfir endamark í lok sprettaksturs.
4.3.6.a Að auki þarf að taka tillit til viðbótartíma sem þarf til að jafna út tímamismun í ræsingu.
4.3.6.b Taki ökumaður ekki skilyrt aksturshlé tímanlega rennur hann út á tíma og fellur þá strax úr keppni.
GREIN 5 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNA
5.1 Allir ökumenn, óháð flokkum ökutækja, skulu vera í að lágmarki tveggja laga eldheldum heilgalla með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000), SFI (SFI 3.2A/5 eða hærra) eða fatnaði úr náttúrulegum efnum sem hylur líkamann á sambærilegan hátt.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Fyrstu 25 skráningar sem mótteknar verða í mótakerfi AKÍS og uppfylla tilskilin skilyrði varðandi keppanda, ökumann/menn og ökutæki fá strax þátttökurétt.
6.1.1 Keppnishaldara er heimilt að samþykkja fleiri skráningar telji hann það ekki ógna öryggi keppninnar.
6.1.1.a Slíkar viðbótar skráningar verða samþykktar í sömu röð og þær bárust í mótakerfinu.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS en keppnishaldara er jafnframt heimilt að handskrá keppendur fyrir upphaf keppni eftir þörfum.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 15. ágúst 2026 klukkan 17:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 8.000 og felur það í sér:
6.6.1 þátttökurétt í keppninni;
6.6.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
6.6.3 afnot af virkum tímatökusendi sem hentar í keppnina.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu (keppnisviðauki við venjulega tryggingu fyrir tímaat eða kappakstur).
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011 með áorðnum breytingum.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og reglur AKÍS eða landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri ökutækis er úthlutað af keppnishaldara.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á öllum fjórum hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone 803 C lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðum að aftan, hægra- og vinstra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.2.5 í afturrúðu, bílstjóramegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð.
9.3 Keppendum ber að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar og tryggja að ökutæki sé rétt merkt þegar það kemur í keppnisskoðun.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS, Reglubókar FIA og reglur og lög landsins.
9.5 Heimilt er að setja auglýsingaborða efst á framrúðu hann má þó ekki vera hærri en svo að ökumaður haldi óskertu og öruggu útsýni til aksturs.
GREIN 10 TÍMATÖKUSENDIR
10.1 Öll ökutæki skulu bera virkan tímatökusendi sem keppnishaldari útvegar á meðan á keppni stendur.
10.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
10.3 Falli tímatökusendir af ökutæki, eða hætti hann að virka, er heimilt að vísa ökutæki í pitt með svörtu flaggi. Telst keppnisþátttöku þess lokið geti keppandi ekki gert viðeigandi úrbætur eða sett nýjan virkandi tímatökusendi á ökutækið innan þess tíma sem keppnisstjóri gefur til slíkra úrbóta.
GREIN 11 RÆSING
GREIN 11.1 ALMENNT
11.1.1 Öll ökutæki sem skráð eru til keppni og standast keppnisskoðun fá að ræsa svo fremi að allir ökumenn þess sitji alla keppendafundi samkvæmt dagskrá.
GREIN 11.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
11.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
11.2.1.a Uppröðunarhringur klukkan 13:15. Ræst í fylgd öryggisbíls.
11.2.1.b Fyrsta ökutæki ræst til keppni klukkan 13:20 við pitt útaksturshlið.
11.2.1.b.i Ræst er úr kyrrstöðu.
11.2.1.c Ökutæki eru ræst út með jöfnu millibili við upphaf keppni.
11.2.1.c.i Nákvæmt millibil verður kynnt á keppendafundi.
GREIN 11.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
11.3.1 Rásröð ökutækja er ákveðin af keppnishaldara og kynnt á keppendafundi.
11.3.2 Ökutæki skulu koma að pitt útaksturshliði í þeirri röð sem er kynnt á keppendafundi og stöðva þar eftir ábendingu ræsis og ræsa þegar hann gefur ræsimerki.
11.3.3 Vél ökutækja skal vera í gangi við ræsingu.
GREIN 12 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
12.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafundi á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja þá alla.
12.1.1 Sé ökumaður (og fulltrúi keppanda sé hann ekki ökumaður) ekki á keppendafundi fær ökutækið ekki rásheimild.
12.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
12.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum.
12.3.1 Hún er aðgengileg á slóðinni https://nn.is/c9RSw
12.3.2 Á upplýsingatöflunni birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
12.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
12.4.1 Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
12.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
12.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
12.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 13 ÚRSLIT
13.1 Sigurvegari í keppninni verður sá sem fyrst lýkur 16 eknum hringjum.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
13.3.1 Áætlað er að birting verði kl. 14:00.
13.4 Lokaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur samþykkt þau.
GREIN 14 VERÐLAUN
14.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum keppninnar.
14.1.1 Veitt verða sérstök verðlaun fyrir hraðasta ekinn hring.
14.2 Verðlaun verða afhent um leið og sprettakstri lýkur á grundvelli tímatökukerfis með fyrirvara um breytingar þegar lokaúrslit verða birt.
14.2.1 Verðlaunahafar munu þurfa að gefa eftir, án eftirmála, afhent verðlaun fyrir sæti með öllum þeim réttindum og fríðindum eða verðlaunagripum sem því fylgja, komi til þess að lokaúrslit endurspegli ekki úrslit sem verðlaunaafhending byggði á.
GREIN 15 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 15.1 DÓMNEFND
15.1.1 Dómnefnd skipa Viktor Böðvarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Aðalsteinn Símonarson og Rafnar Snær Baldvinsson.
GREIN 15.2 HELSTU STARFSMENN
15.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Baldvin Hansson.
15.2.2 Skoðunarmaður er Einar Örn Reynisson.
15.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingimundur Helgason.
15.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.
15.2.4.a Sjúkrabifreið verður kölluð til komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
15.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 15.3 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
15.3.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 15.4 STAÐREYNDADÓMARAR
15.4.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
16 RAFRÆNN BÚNAÐUR
16.1 Í stað brautarvarða með flögg getur keppnishaldari notast við ljósabúnað. Við brautina verða þá ljós sem lýsa grænu, gulu, rauðu eða SC.
16.1.1 Merking ljósanna er sambærileg merkingu flagga:
16.1.1.a grænt ljós blikkar eða logar þegar braut er hrein og akstur ótakmarkaður. Hafi grænt ljós blikkað lengur en 30 sekúndur verður það logandi stöðugt. Ljósapóstur sem ekki lýsir er marklaus og ber að túlka sem óbreytta stöðu frá síðasta pósti sem lýsti hverju sinni;
16.1.1.b gult ljós blikkar þegar hætta er í braut og ber að virða það samkvæmt reglum;
16.1.1.c rautt ljós blikkar þegar keppni hefur verið stöðvuð og ber að virða samkvæmt reglum;
16.1.1.d SC blikkar ef öryggisbíll er í braut. Það hefur sama gildi gagnvart reglum og gult ljós en gefur ökumönnum til kynna að öryggisbíll sé í braut og því þarf að aka eftir því.
GREIN 17 ÖKUTÆKI
17.1 Hver ökumaður má aðeins aka einu ökutæki í keppninni.
17.2 Hverju ökutæki má aðeins einn ökumaður aka.
17.3 Hjólbarðar
17.3.1 Hjólbarðar skulu flokkast sem sumardekk, hafa mynstur (slikkar eru ekki leyfðir) og uppgefið Treadwear (samkvæmt UTQG) frá framleiðanda 220 eða hærra.
17.3.1.a Gefi framleiðandi ekki upp Treadwear getur skoðunarmaður ákveðið hvort tiltekin dekk teljast samþykkt til keppni.
17.3.2 Lágmarks mynsturdýpt er 3mm við upphaf keppni.
17.3.3 Ekki má skipta um hjólbarða á meðan á keppni stendur.
17.3.4 Springi hjólbarði, eða missi loft að ráði, fellur ökutækið úr keppni og skal því ekið strax út úr aksturslínu brautarinnar þannig að ekki stafi af því hætta og ökumaður skal gefa merki með hazard ljósum um að aðstoðar sé þörf. Brautarstarfsmenn koma þá til aðstoðar og ákveða næstu skref.
17.4 Eldsneyti
17.4.1 Einungis er leyfilegt að nota eldsneyti sem fæst á dælu í almennri sölu á Íslandi.
17.4.2 Óheimilt er að fylla á eldsneytistank ökutækis á meðan á sprettaksturslotu stendur.
17.4.2.a Ökumaður má aldrei annast eldsneytisáfyllingar sjálfur.
17.4.2.b Verði ökutæki eldsneytislaust er þátttöku þess í keppninni lokið og fær það ekki að aka úr pitti eftir að það hefur yfirgefið brautina.
17.4.3 Ekki er heimilt að setja eldsneyti á ökutæki undir þrýstingi öðrum en náttúrulegu aðdráttarafli jarðar.
GREIN 18 FRAMÚRAKSTUR
Keppnin er ekki kappakstur milli ökutækja heldur keppni við klukkuna! Því er óheimilt að halda ökutæki fyrir aftan sig hafi það ítrekað náð öðru ökutæki á brautinni. Ávallt skal hleypa hraðara ökutæki fram úr á öruggan hátt með því að víkja til hægri og gefa stefnuljós til merkis fyrir aftari ökumann.
18.1 Óheimilt er að taka fram úr ökutæki sem er að taka fram úr öðru ökutæki á sama tíma.
18.2 Framúrakstur telst hafinn þegar framstuðari aftari bíls er samhliða afturstuðara fremri bíls.
18.3 Staðreyndadómarar leggja mat á framúrakstur og tilkynna dómnefnd um atvik sem ekki teljast samkvæmt reglum.
18.3.1 Í tilfellum þar sem framúrakstur er dæmdur refsiverður fær viðkomandi svart flagg við fyrsta tækifæri, ekur í pittstæði sitt og tekur út refsinguna þar nema hann fái skipanir eða bendingar um annað frá starfsmönnum keppninnar.
GREIN 19 SÉRSTAKAR REFSINGAR
19.1 Refsing fyrir akstur utan hraðatakmarkana í pitti er 30 sekúndna tímarefsing sem tekin skal út í sérstöku pittstoppi sem ökumaður er boðaður í með svörtu flaggi en annars með tímabreytingu á lokatíma hafi ekki tekist að flagga fyrir lok keppni.
19.2 Sé blátt flagg ekki virt er ökutæki svartflaggað og þarf að aka í pittstæði sitt og taka út refsingu sem dómnefnd ákveður áður en það fær að fara aftur inn á brautina.
GREIN 20 ÖRYGGISMÁL
20.1 Merkjagjöf getur verið hvort sem er, rafræn (ljósabúnaður), með flöggum eða bendingum starfsmanna.
20.2 Tímamæling er ekki stöðvuð þó gult flagg fari á loft.
20.3 Við rautt flagg ákveður keppnisstjóri hvort og þá hvenær og hve lengi tímamæling er stöðvuð.
20.4 ÖRYGGISBÍLL
20.4.1 Keppnisstjóri tekur ákvörðun um að öryggisbíll aki inn á brautina þyki honum ástæða til.
20.4.1.a Að jafnaði er öryggisbíll notaður ef starfsmenn eða ökumenn teljast í hættu á eða við brautina en aðstæður kalla ekki á að keppni sé stöðvuð.
20.4.2 Gult flagg fer á loft (eða SC ljós) hjá öllum brautarvörðum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni.
20.4.3 Engu keppnistæki skal ekið ógætilega, óreglulega, óeðlilega hægt eða á annan hátt sem telja má hættulegt öðrum keppendum eða starfsmönnum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni. Á þetta við um allan akstur á brautinni og í pitt akreinum eða pitt svæði.
20.4.4 Öryggisbíllinn ekur inn á brautina með blikkandi ljós og án tillits til þess hvar fremsta ökutæki er staðsett þá stundina.
20.4.5 Ökutæki skulu hægja ferð og mynda röð á eftir öryggisbílnum með hámark fimm bíllengdir á milli sín.
20.4.6 Óheimilt er að taka fram úr öryggisbílnum eða öðrum keppnistækjum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni. Framúrakstur er þó heimill ef:
20.4.6.a Ökumaður öryggisbíls gefur skýrt merki um framúrakstur.
20.4.6.b Hægi ökutæki á sér eða stoppi vegna augljósra vandræða sem hann ræður ekki við öðruvísi.
20.4.7 Þegar öryggisbíllinn yfirgefur brautina og ekur í pitt hefst hefðbundinn akstur að nýju.
20.4.7.a Þá falla gulu flöggin og grænt flagg er gefið (eða ljós, eftir atvikum).
20.4.7.b Þegar öryggisbíllinn hefur ekið inn á pittrein er framúrakstur heimill að nýju.
20.4.7.c Á meðan öryggisbíll er í braut heldur talning ekinna hringja áfram.
20.4.8 Fari rautt flagg á loft (eða ljós) ber ökumanni að aka rólega og af mikilli varkárni beint í pitt og annað hvort stöðva ökutæki sitt í pittstæði sínu eða fylgja leiðbeiningum starfsfólks í pittinum séu þær veittar.
20.4.9 Aka skal í pittinn þó öryggisbíll haldi akstri áfram eftir brautinni!
20.4.10 Á meðan öryggisbíll er í brautinni og gult flagg er á lofti (eða ljós) má aka ökutækjum í pitt.
20.4.11 Þegar ekið er inn á brautina úr pittinum á meðan öryggisbíll er úti er ökutækjum aðeins heimilt að bætast aftan við halarófu þeirra sem honum fylgja, nema keppnisstjóri telji annað henta betur af öryggisástæðum og mun pittstjóri þá leiðbeina ökumanni um það.
20.5 Um öryggisbúnað ökumanna gilda reglur þess flokks sem ökutækið telst tilheyra samkvæmt flokkareglum AKÍS um tímaat.
21 KEPPNISFLOKKASKILGREINING
21.1 Ökutæki öðlast rétt til skráningar standist það öll skilyrði flokkaskilgreiningar.
21.2 Ökutæki af öllum gerðum Porsche mega taka þátt.
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Tryggvi Guðbjörn Benediktsson | KK | 0 | ||
| 2 | Auðunn Svafar Guðmundsson | KK | 0 | ||
| 3 | Benedikt Eyjólfsson | KK | 0 | ||
| 4 | Þorvaldur Gissurarson | KK | 0 | ||
| 5 | Brynjólfur Þorkelsson | KK | 0 |