Rednek Bikarmót 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: hannarunragnars@gmail.com

Lýsing

REDNEK Bikarmót í Rallycross 2026

 

Keppnin fer fram 18.-20. September 2026 á Aksturíþróttasvæði AIH

Keppnisgjald er 38.000 kr en unglingar í unglingaflokk greiða helming af keppnisgjaldi. 

 

Keyrð eru 4 heat á laugardeginum og 4 heat á sunnudeginum. Stigum er safnað fyrir hvern riðil og eiga því keppendur í öllum flokkum möguleika á að hljóta titilinn Rednek Bikarmeistari 2026, sá sem er með flest stigin eftir báða dagana vinnur bikarinn, einnig verða gefnir bikarar fyrir fyrstu 3 sætin í öllum flokkum.

Það sem gerir þetta mót einstakt er að keppendum ber engin skylda að mæta í alla riðla, þú safnar einungis stigum fyrir þá riðla sem þú klárar. Vert er þó að taka fram að keppendur eru beðnir um að láta keppnisstjóra vita ef þeir sjá sér ekki fært að mæta í ákveðna riðla. 

Verði einhverjir jafnir að stigum þá ræður úrslit 1.riðils. 

Dagskrá

Rednek Bikarmótið - Dagskrá. 

Föstudagur 18.september
18:00
Mæting 
18:30 Pitturinn lokar
18:30 Starfsmannafundur
18:30 Skoðun hefst.
20:30 Dregið í rásröð

Laugardagur 19.september
9:00
Mæting keppenda 
9:20 Fundur með keppendum
10:00 Minningarakstur 
10:15 Keppni hefst
17:00 Áætluð keppnislok á degi 1. 
18:00 Kvöldmatur og dregið í rásröð fyrir dag 2.

Sunnudagur 20.september
9:00
Mæting keppenda
9:20 Fundur með keppendum 
10:00 Keppni hefst 
17:00 Áætluð keppnislok

ATH Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.


 

Skipuleggjandi

AÍH

Keppnisstjóri: Hanna Ragnarsdóttir

Öryggisfulltrúi: Magnús Ingolfsson

Skoðunarmaður: Elvar Smári Jónsson

Formaður dómnefndar: Rafnar Snær Baldvinsson

Dómnefnd 1: Ari Halldor Hjaltsson

Dómnefnd 2: Sigurður Arnar Pálsson

Framkvæmdanefnd:
AÍH

Dagsetningar

Frá: 19. September 2026 kl: 09:00
Til: 20. September 2026 kl: 09:00

Brautir og vegalengdir

Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is

Tegund/mótaröð

Rallycross

Bikarmót í Rallycrossi 2026 -

Skráningargjöld

Skráning hefst: 2. September 2026 kl: 17:00

Skráningu lýkur: 15. September 2026 kl: 17:00

1400 flokkur: 38000 kr.-

2000 flokkur: 38000 kr.-

4x4 Non Turbo: 38000 kr.-

Opinn flokkur: 38000 kr.-

Standard 1000cc flokkur: 38000 kr.-

Unglingaflokkur: 19000 kr.-

Unglingaflokkur - Byrjenda: 19000 kr.-

Flokkar

1400 flokkur

2000 flokkur

4x4 Non Turbo

Opinn flokkur

Standard 1000cc flokkur

Unglingaflokkur

Unglingaflokkur - Byrjenda

SÉRREGLUR Rednek Bikarmót 2026 í mótaröð Bikarmót í Rallycrossi 2026 -


GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Rednek Bikarmót 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rallycross og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH
850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
, þann 19. september 2026 kl: 09:00 til 20. september 2026 kl: 09:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, til heimilis að Kapelluhrauni.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Hanna Rún Ragnarsdóttir, Guðmundur Örn og Magnús Ingólfsson.

3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í Kapelluhrauni.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Ekið verður Réttsælis og Rangsælis um brautina.

4.1.3 Brautin er 850 metra löng

4.1.4 Hver riðill er meira en 5 hringir, eða u.þ.b. 4.650 m.
4.1.4. a Þegar fyrsta ökutæki í riðli ekur í 6. skipti yfir endalínu er flaggað á það til merkis um lok riðils.
4.1.4. b Öll önnur ökutæki í riðlinum verða flögguð út í næsta sinn sem þau fara yfir endalínu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Pitturinn nær frá stjórnstöð og fram að félagsheimili

GREIN 4.3 PARC FERMÉ

4.3.1 Parc Fermé er pitturinn eða annað skilgreint svæði 

4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur á sunnudeginum, ökumenn mega ganga frá bílum á kerrur, skipta um dekk en ekki eiga neitt við bílana að öðru leiti.

4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pitt.

4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita á upplýsingatöflu eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið. – Brjóti keppandi Parc Fermé reglu er hann dæmdur aftastur í sínum úrslita riðli

4.3.4 Viðgerðir aðrar en að skipta út sprungnu dekki eru ekki heimilar í Parc Fermé.

        Ekki má fylla á eldsneyti

GREIN 5 SKRÁNING
5.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

5.4 Skráningu lýkur þann 15.09.2026 kl 17:00.

5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

5.6 Almennt keppnisgjald án AKÍS gjalds (skráningargjald) er kr. 38000 (unglingaflokkur greiðir 19000) og felur það í sér:
5.6.a þátttökurétt í keppninni;
5.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, bætist svo við.

5.7. Leyfður fjöldi aðstoðarbíla er 1 fyrir hvern skráðan keppnisbíl.


GREIN 6 TRYGGINGAR
6.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

6.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.

6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

GREIN 8 TÍMATÖKUSENDIR

8.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur, og skal hann vera kominn í áður en farið er í öryggisskoðun. Ekki er hægt að ábyrgjast virkni tímatökukubbs.

8.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.

8.2.b Tímatökusendir á að vera staðsettur í hægri hjólaskál bíls.

8.3 Hægt er að styðjast við tímatökubúnað í keppni ef dómnefnd þykir ástæða til.

GREIN 9 RÆSING
GREIN 9.1 ALMENNT
9.1.1 Ökutæki þarf að vera skráð til keppni og standast keppnisskoðun til að fá rásheimild.

9.2 KEPPNISRÖÐ.

9.1.2.a Keppnisstjórn ásamt keppendum dregur í rásröð fyrir fyrsta riðil laugardags

9.1.2.b Riðill 2 öfug ræsing (úrslit úr 1.riðli)

9.1.2.c Riðill 3 öfug ræsing (úrslit úr 2.riðli)

9.1.2.d Riðill 4 öfug ræsing (stig úr riðlum 1 til 3 raðað í A og restin í B, stigahæstu í A) 

9.1.2.e Riðill 5, dregið um rásstað á línu, öfugt start. (úrslit úr riðli 4 ráða, 4 fyrstu ræsa á öftustu línu, miðjan ræsir á miðju línu og síðustu ræsa á fyrstu línu)

9.1.2.f Riðill 6 öfug ræsing (úrslit úr 5.riðli) 

9.1.2.g Riðill 7 öfug ræsing (úrslit úr 6.riðli)

9.1.2.h Riðill 8 öfug ræsing (stig úr umferð 1 til 7 raðað í A og restin í B, stigahæstu í A)
9.1.3. Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A
9.1.4 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.9.3 Keppnisgreinareglum fyrir rallycross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.

9.1.4.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.



GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Ræsing í fyrsta riðil kl 10:15
10.2.1.b Ræst úr kyrrstöðu
10.2.1.c Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 11.5.

11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður rafræn og auglýst síðar.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
11.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.

11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.b Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um Rallycross

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki og eru það heildar stigin yfir keppnina sem gilda.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Rafnar Snær Baldvinsson, sem jafnframt er formaður hennar, Ari Halldór Hjaltason og Sigurður Arnar Pálsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Hanna Ragnarsdóttir.

14.2.2 Skoðunarmaður er Elvar Smári Jónsson ásamt aðstoðarmönnum.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Magnús Ingólfsson.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 15.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Eru staðsettir umhverfis brautina og á ráslínu.

Grein 15 Stigagjöf

Stig fyrir hvern riðil :  Klára þarf riðilinn til að fá stig.

     Sæti/ stig  fyrir hvern riðil.

  1. 20                   
  2. 17                   
  3. 15                  
  4. 13                   
  5. 11                   
  6. 10                   
  7. 9                     
  8. 8                     
  9. 7                      
  10. 6                     
  11. 5                      
  12. 4                     
  13. 3                     
  14. 2                     
  15. 1            

KeppendI getur einungis safnað stigum í þeim riðlum sem hann mætir í og klárar.          

Grein 16 Refsingar og fleira

16.1.1. Ef keppandi þjófstartar eða krossar línur í starti verður ekki notast við rautt flagg og endurræsingu riðils (keppnisgreinareglur rallycross 3.3.6 og 3.3.6.a). Þess í stað verður keppanda veitt refsing sem ákvörðuð er af dómnefnd hverju sinni. 

16.1.2. Þjófstarti keppandi verður notast við svart flagg honum til upplýsingargjafar og/eða tilkynnt á upplýsingatöflu ásamt refsingar ákvörðun.

16.2.1. Dómnefnd og keppnisstjóra er heimilt að kalla eftir og notast við myndefni úr myndavélum keppenda til stuðnings við ágreiningsmál, dóma og annara mála sem kunna að koma upp á keppnisstað.

16.2.2  Keppnisstjóra, í samstarfi við dómnefnd, er heimilt að koma fyrir myndavél í ökutæki sé þess óskað og skal það gert með vitneskju keppenda og/eða liðsstjóra.

Mótmæli og kærur eru teknar fyrir samkvæmt reglum Akís og sérreglum keppninar.

Aðeins keppandi (ef keppandi skráði sig sjálfur í keppni)eða samkeppnisaðili getur sent inn kærur og áfrýjun.

Allar kærur verða vera afhentar á réttu formi samkv. Reglum Akís (Kærur skulu gerðar samkvæmt ISC. Undirritaðar kærur ásamt kærugjaldi skulu afhentar keppnisstjóra eða staðgengli hans innan tilsetts kærufrests. Kærugjald er samkvæmt gjaldskrá Akís, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar.) hún verður að vera undirrituð af keppanda og verður að innihalda hvaða reglu/brot er verið að kæra.

Hægt er að skjóta málum til almennrar dómnefndar AKÍS til samræmis við reglur

Allar kærur verða vera lagðar fram með kærugjaldi sem er 50.000 kr.

Ef kæru upphæð fylgir ekki með, er kæra ekki tekin gild.

Kæra sem felur í sér rif á bíl er aukagjald:  40.000 kr.

Kostnaður sem verður vegna rif á bíl eru borguð af:

Þeim sem leggja fram kæru, ef hún á ekki við rök að styðjast

Keppanda, ef kæra á við rök að styðjast

Tímamörk til að leggja fram kærur:

 Kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit eru birt, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar

Mótmæli um að ökutæki standist ekki reglur í flokk verða vera komin fram ekki seinna en 15mín eftir að riðli lauk (úrslit úr riðli).

Mótmæli um gang keppninnar, úrslit eða dóma, verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að riðli lýkur sem við á.

Mótmæli um ákvörðun brautarstjóra verða vera komin fram innan við 15 mín eftir að ákvörðunin var auglýst á uppl.töflu.

Mótmæli geta verið tekin fyrir eftir tímamörk, einungis ef Dómnefnd telur að ástæðan á töfini sé hlutlæg og sanngjörn

Tímasektir og ekki gefið rásleyfi útaf komið of seint á ráslínu er ekki hægt að áfrýja

Áfryjanir: eru samkv reglum Akís og sérreglum keppninnar

Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Hönnu S: 6929594 eða hannarunragnars@gmail.com 


 

Úrslit

1400 flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Orri Wolfram Jörgensson AÍH Toyota Corolla 0
2 Sindri Már Sigrúnarson AÍH Toyota Yaris 0
3 Halldór Ólafsson AÍH Honda Civic 0
4 Pálmar Henry Brynjarsson AÍH Chevrolet Spark 2012 0
5 Zilvinas Stonys AÍH hyundai i20 0
6 Guðni Þór Jósepsson BA Volkswagen Polo 0
7 Sólveig Lind Magnúsdóttir AÍFS Chevrolet Spark 2012 0
8 Gunnar Örn Jóhannsson AÍH Honda Civic 0
9 Bergrún Fönn Alexandersdóttir AÍH Suzuki Swift 0
10 Jón Birkir Árnason AÍH Toyota Yaris 0

2000 flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Vikar Karl Sigurjónsson AÍFS Honda Civic/Integra 0
2 Ásgeir Ingvarsson AÍH Honda CRX Del sol 0

4x4 Non Turbo

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Heiðar Örn Sverrisson AÍH subaru impreza 0
2 Sölvi örn Heiðarsson AÍH Subaru impreza 0
3 Aron máni júlíusson AÍFS Subaru Legacy 0
4 Jakob Pálsson AÍH Subaru Impreza 0
5 Halldór Ólafsson AÍH Subaru Impreza 0
6 Arnar Már Pálsson AÍH Mmc Galant 1996 0
7 Kristinn Örn Jakobsson AÍH Subaru Impreza 0
8 Omar Abraham KK Subaru 1800 0
9 Þórir Mar Ingvason TK Honda CRV 0
10 Þröstur Jarl Sveinsson AÍH Subaru impreza 0

Opinn flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Birgir Kristjánsson AÍH Honda Civic ep3 0
2 Ágúst Sverrir Danielsson KK MMc Lancer Evo4 0
3 Kristján valur kristinsson AÍH Buggy 0
4 Magnús Vatnar Skjaldarson AÍH Subaru Impreza 0
5 Gedas Karpavicius AÍH WV Polo 0
6 Eva arnet Sigurðardóttir AÍH Subaru Impreza 0
7 Steinar Nòi kjartansson AÍH Dodge Stealth 0

Standard 1000cc flokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
14 Dórothea Ruth Hilmars. AÍH Peugeot 108 0
27 Guðmundur Gauti Ívarsson AÍH Toyota Aygo 0
26 Hergill Henning Kristinsson AÍH Toyota aygo 0
25 Valdimar Kristinn Árnason AÍH Peugeot 107 0
24 Emelía Rán Arnarsdóttir AÍH subaru justy 0
23 Björgólfur Bersi Kristinsson AÍH Toyota Yaris 0
22 Adam Máni Valdimarsson AÍH Toyota Aygo 0
21 Daníel Jökull Valdimarsson BÍKR Toyota Aygo 0
20 Gunnlaugur Steinar Guðmundsson KK Toyota aygo 0
19 Erla Sigríður Sigurðardóttir AÍH Toyota Yaris 0
18 Sara Rún Hilmarsdóttir AÍH Toyota Aygo 0
17 Yngvi Rúnar Högnason AÍH Toyota Aygo 1000cc 0
16 Vinjar Rökkvi Ingason AÍH Toyota Aygo 0
15 Brynhildur Sesselja Hafsteinsdóttir AÍH yaris 0
1 Kristinn Valgeir Sveinsson AÍH Toyota Yaris 1.0 0
13 Birkir Rútsson AÍH Kia Picanto 0
12 Adam Stefaánsson AÍH Toyota aygo 0
11 Jóhann Pálmarsson AÍH Toyota Yaris 0
10 Tómas Orri Kjartansson AÍH yaris 0
9 Þorsteinn Helgi Stefánsson AÍH Toyota Yaris 0
8 Jon Gunnar Kristjansson AÍH Toyota Yaris 2006 0
7 Óskar Ingi Stefánsson AÍH Toyota Yaris 0
6 Deimante Konovaite AÍH Toyota Aygo 0
5 Magnús Þórðarson BÍKR Hyundai i10 0
4 Helena Ósk Elvarsdóttir AÍH Toyota Aygo 0
3 Jóhanna L'orange Magnúsdóttir AÍH Toyota Yaris 0
2 Skuli Darri AÍFS yaris 0

Unglingaflokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
11 Alexander Breki Þrastarson AÍH Toyota Yaris 0
20 Friðrik Líndal Antonsson AÍH Vw Polo R 0
19 Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir AÍH Toyota Aygo 0
18 Kristján ísak jónsson AÍH Toyota Aygo 2005 0
17 Elvar Smári Reynirsson AÍH Toyota aygo 0
16 Edda Björk Guðnadóttir AÍH Toyota Aygo 0
15 Elísa Rún Hilmarsdóttir AÍH Toyota Aygo 1.0 0
14 Ari Fritz Ingvarsson AÍH Toyota Aygo 0
13 Þröstur Breki Hlífarsson AÍH Yaris 0
12 Elísabeth Ástrós Geirsdóttir AÍH Toyota Aygo 0
1 Alex Jamil Atlason AÍH Peugeot 108 0
10 Eyþór Atli Jóhannsson AÍH Toyota Aygo 0
9 Sighvatur Óli Þorsteinsson AÍH Toyota Aygo 0
8 Sigurður Ágúst Alfreðsson BA Toyota Yaris 0
7 Leó Geirsson AÍH toyota yaris 0
6 Sigurður Almar Guðnason AÍFS Toyota Aygo 0
5 Guðmundur Baldvin Stefánsson BA Toyota Yaris 0
4 Elías Páll Pálsson AÍH Toyota Aygo 0
3 SIgrún Helga Ragnarsdóttir AÍH Citroen C1 0
2 Guðni Hrafn Baldursson BA Toyota Yaris 0

Unglingaflokkur - Byrjenda

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Brynjar Þór Hannesson AÍH Toyota Aygo 0
2 Bjarmi Dagur Pálsson AÍH Toyota Yaris 1000 rallycross 0
3 Margrét Rún Sighvatsdóttir AÍH Toyota aygo 0
4 Elín Elísabet Sæmundsdóttir AÍFS Kia 0
5 Erla Björt Árnadóttir AÍH Toyota Yaris 0
6 Guðmundur þormar þórsson BA Toyota Aygo 0
7 ALEXANDER STORMUR AXELSSON AÍH Toyota Yaris 0