Orku Haustrallýy

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: gardar@bilaroghjol.is

Lýsing

Orku Haust rallý Akstursíþróttafélags Suðurnesja verður haldið laugardaginn 3. október 2026.
Keppnin er jafnframt 5. og síðasta umferð Íslandsmótsins í Rallý.
 

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:

  •  A Flokkur
  • C Flokkur
  • E - Eindrif-1000 m3 Flokkur
  • E - Eindrif-1400 m3 Flokkur
  • E - Eindrif-X, Flokkur
  • J - Jeppaflokkur TO

Dagskrá

Orku Haust Rallý 3. október 2026

12. sept.- Reglur um könnun sérleiða (leiðaskoðun) taka gildi.

  • Tilkynna þarf fyrirfram um leiðaskoðun með tölvupósti á netfangið gardar@bilaroghjol.is
  • Þar komi fram hvenær áhöfn hyggst leiðaskoða, bílnúmer, litur, og gerð skoðunarbifreiðar.
  • Heimilt er hverri áhöfn að fara tvær ferðir (í hvora átt (ef við á)) um hverja sérleið. Fer keppnisstjórn fram á að  keppendur séu heiðarlegir með það.
  • Gæta skal varúðar og virða umferðarreglur.
  • Brotum á framangreindum takmörkunum verður vísað til dómnefndar.


12.Sept.-  Skráning opnar. Keppnisgjald er 25.500kr per ökumann eða 65.000kr per áhöfn með öllum gjöldum. (Tímatökubúnaður og Akis gjald)

27.sept.- Skráningu lýkur kl 17:00.

27.sept.- rásröð birt 1.okt Keppnisskoðun kl 18:00, Smiðjuvellir 6 (AÍFS).
Minni á að refsing er gefin fyrir að mæta of seint í keppnisskoðun. (Refsing 10 sek fyrir hverja byrjuðu mínútu)

1.okt.- Keppendafundur að lokinni keppnisskoðun í húsi AÍFS.
Minnum á að skyldumæting er á keppendafund. Ef keppendur sjá sér ekki fært um að mæta á keppendafund skal senda keppnisstjórn tölvupóst með ástæðu fyrir fjarveru.

1.okt.- Starfsmannafundur kl 20:30 í húsi AÍFS að Smiðjuvellir 6.

3.okt.- Keppni byrjar. Mæting á fyrstu sérleið.
Fyrsti bíll ræstur kl 09:00
3.okt.- Verðlauna afhending áætluð kl (Staðsetning auglýst síðar)

  • Allar tímasetningar sem eru hér að ofan skulu keppendur virða, ef keppendur koma seint er það tekið fyrir hjá dómnefnd og áhöfn fær refsingu fyrir sitt brot.
  •  Brot á fyrrnefndum bönnum varðað brottvísun úr keppni
  • Dagskrá gæti breyst og verður það tilkynnt í upplýsingarskýrslu.

Skipuleggjandi

AÍFS

Keppnisstjóri: Garðar Haukur Gunnarsson

Aðstoðarkeppnisstjóri: Magnús Ragnarsson (1206962979)

Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson

Skoðunarmaður: Magnús Ragnarsson

Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson

Dómnefnd 1: Kristín Kristinsdóttir

Dómnefnd 2: Guðmundur Örn Þorsteinsson

Framkvæmdanefnd:
Garðar Haukur Gunnarsson ásamt mótorsportnefnd AÍFS.

Dagsetningar

3. October 2026 kl: 09:00

Brautir og vegalengdir

Sérleiðir í rally
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Rally

Íslandsmeistaramót -

Skráningargjöld

Skráning hefst: 12. September 2026 kl: 12:00

Skráningu lýkur: 27. September 2026 kl: 17:00

Flokkar

Flokkur A

Flokkur C

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#3 - 24. September 2026 kl: 17:33
Uppfærður Tímamaster

Þar sem leyfi eru komin  þá lýtur timamsterinn svona út 

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#2 - 24. September 2026 kl: 17:32
Leiðarlýsing.

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#1 - 17. September 2026 kl: 11:56
Tímamaster

Hér er tímamaster eins og planið er að keyra í þessu rallý ef leyfi fást erum með plan B ég það klikkar 

Hala niður viðhengi
Skoða allar færslur

Sérreglur Orku Haustrallýrally AÍFS í Íslandsmeistaramótinu 2026

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Orku Haustrallý og er 5. umferð Íslandsmótsins í rally 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Suðurlandi/Suðurnesjum þann 3. október 2026.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Aðeins verður keppt í keppnisflokkum sem 2 skráningar eða fleiri berast fyrir.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Suðurnesja, til heimilis að Smiðjuvellir 6, Reykjanesbær.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Garðar Haukur Gunnarsson, Magnús Ragnarsson og Kristófer Karlsson.
3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar er Garðar Haukur Gunnarsson.

3.2 Framkvæmdanefndar keppninnar er til heimilis að Smiðjuvellir 6.

3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 8967392

3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er mottaka@bilaroghjol.is

GREIN 4 KEPPNISFLOKKAR

Keppt verður í eftirtöldum flokkum:

4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur C
4.1.2 Flokkur E – Eindrif 1000 m3
4.1.3 Flokkur E – Eindrif 1400 m3
4.1.4 Flokkur E – Eindrif X
4.1.5 Flokkur J – Jeppaflokkur TO

4.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 5 SKRÁNING

5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.

5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

5.4 Skráningu lýkur þann 2026-09-27 17:00:00 kl. 17:00.

5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru eru samþykktar í þessari keppni.

5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 25500
5.6.a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.

5.7  Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.a þátttökurétt í keppninni.
5.7.b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 6 TRYGGINGAR

6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.

7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 8 UPPLÝSINGATAFLA

8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/594.
8.1.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.

GREIN 9 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
9.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

GREIN 10 RÆSING

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun. 

10.2.1 Fyrsta ökutæki verður ræst kl. 09:00 samkvæmt tímaáætlun.

10.2.1.a Önnur ökutæki verða ræst með einnar 1 mínútna millibili.

10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.

10.2.2.a Tímaverðir munu telja niður að rástíma inn á sérleiðar.

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt dagskrá.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.

12.2 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3.sæti í öllum flokkum samkvæmt lokaúrslitum.

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND
13.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Kristín Kristinsdóttir og Guðmundur Örn Þorsteinsson.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN
13.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Garðar Haukur Gunnarsson.
13.2.2 Skoðunarmaður er Magnús Ragnarsson.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldor Hjaltsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er Kristófer Karlsson.
13.2.6 Starfsmannastjóri er Garðar Haukur Gunnnarsson.
13.2.7 Tengiliður keppenda er Magnús Ragnarsson.

GREIN 13.3 STAÐREYNDADÓMARAR
13.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.

GREIN 14 KÖNNUN SÉRLEIÐA

14.1 Könnun sérleiða er leyfð, kemur fram í dagskrá. Nánari upplýsingar munu birtar á upplýsingatöflu keppninnar ef þörf verður á. 

GREIN 15 VIÐGERÐIR

 15.1 Þau svæði eða leiðarhutar sem ekki verður heimilt að gera við ökutæki á verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun ökutækja.

GREIN 16 HINDRANIR / ÞRENGINGAR

16.1 Upplýsingar um staðsetningu hindrana til að draga úr hraða ökutækja á sérleiðum koma fram í leiðarbók keppninnar og leiðarlýsingu.

GREIN 17 OFURLEIÐ

17.1 Ofurleiðin í þessari keppni er sérleið nr. Síðasta leið rallsins.

GREIN 18 AUGLÝSINGAR 

18.2 Þau svæði á ökutækjum sem keppnishaldari hyggst nýta eru aftan við keppnisnúmer á framhurðum og innihalda nafn keppni.

 

GREIN 19 TÍMATÖKU-  OG STAÐSETNINGARBÚNAÐUR (TOS)

19.1 Ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu vera með rafrænan TOS frá keppnishaldara alla keppnina.

19.1.1 Ísetning á TOS fer fram við skoðun ökutækja, og verður framkvæmd af fulltrúum keppnishaldara.

19.2 Öll ökutæki skulu hafa eftirfarandi búnað fyrir TOS við skoðun:

19.2.1 RAM® kúlu festingu, stærð B, til að festa TOS í ökutækið. Hún skal vera þannig staðsett á/í mælaborði ökutækis að LED-ljósið á TOS tækinu sé sýnilegt og það verði aðgengileg áhöfn ökutækis.

19.2.2 Rafmagnssnúru með Deutsch DTM06-6S (e. female) endatengi sem er innan 20 cm frá RAM® kúlu festingunni.

19.2.2.a Pinni 1 skal tengdur við +12V DC spennu og pinni 4 við mínus (jörð) með að lágmarki 0,5q (kvaðrat) vír.

19.2.2.b +12V spennuvírinn skal varinn með 5A öryggi.

19.2.2.c Rafmagn til tengisins skal aftengjast þegar aðalrofi (höfuðrofi / e. master switch) er slökktur.

19.2.3 Viðeigandi RAM® tengiarm (e. connecting socket arm) til að tengja TOS við ökutækið.

19.3 TOS boxið sjálft er 200 mm x 550 mm x 36 mm að umfangi. RAM® kúlu festing, stærð B, er föst neðan á tækinu og stendur hún um það bil 35 mm út úr því.

19.4 Nákvæmar rekstrarupplýsingar fyrir TOS verða birtar á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun.

19.5 Ekki er heimilt að aftengja TOS eða fjarlægja úr ökutæki nema þegar áhöfn viðkomandi ökutækis er hætt keppni og skila á búnaðinum til keppnishaldara.

19.6 Við lok keppni ber að aftengja tækið og skila því til keppnishaldara.

GREIN 20 SAMSKIPTI.

20.1 Allt starfsfólk keppninnar annast verkefni sín í sjálfboðavinnu.

20.2 Starfsfólk skal leitast við að sinna störfum sínum af kostgæfni, með fagmennsku og ánægju allra sem að keppnishaldinu og umgjörð þess koma, að leiðarljósi.

20.3 Keppendum, áhöfnum og aðstoðarfólki þeirra ber að sýna starfsfólki, og öðrum sem tengjast keppnishaldinu og umgjörð þess, virðingu og kurteisi. Óíþróttamannsleg hegðun getur varðað brottvísun úr keppni og/eða öðrum refsingum, sbr. m.a. grein 3.6.7. í keppnisgreinarreglum fyrir Rallý og 12.2.1 í reglum FIA.

 

Úrslit

Heildarúrslit

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
0 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
AÍFS
Ford Fiesta 0
0 Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdóttir
AÍFS
AÍFS
Subaru Impreza 0
0 Pálmi snær sveinsson
Aðst: Trausti Freyr Sveinsson
AÍH
AÍH
Subaru Impreza 0
0 Sigurgeir Guðbrandsson
Aðst: Gunnlaugur Ásgrímsson
BÍKR
KK
Subaru Impreza 0
0 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
0 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 0
0 Jósef Heimir Guðbjörnsson
Aðst: Hjalti Snær Halldórsson
BÍKR
BÍKR
Mitsubishi Lancer Evo VI 0
0 Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir
BÍKR
AÍH
Subaru Impreza 0
0 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 0
0 Kristinn Valgeir Sveinsson
Aðst: Jón Gunnar Kristjánsson
AÍH
AÍH
Jeep Cherokee Lazy One 0
0 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
AÍH
Mitsubishi Lancer EVO 0
0 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
0
0 Elísa Rún Hilmarsdóttir
Aðst: Hilmar B Þràinsson
AÍH
AÍH
Toyota Yaris 0
0 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
0 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta R5 0

Flokkur A

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
0 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
AÍFS
Ford Fiesta 0
0 Sigurgeir Guðbrandsson
Aðst: Gunnlaugur Ásgrímsson
BÍKR
KK
Subaru Impreza 0
0 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
0 Jósef Heimir Guðbjörnsson
Aðst: Hjalti Snær Halldórsson
BÍKR
BÍKR
Mitsubishi Lancer Evo VI 0
0 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
AÍH
Mitsubishi Lancer EVO 0
0 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
0
0 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
0 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta R5 0

Flokkur C

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
0 Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdóttir
AÍFS
AÍFS
Subaru Impreza 0
0 Pálmi snær sveinsson
Aðst: Trausti Freyr Sveinsson
AÍH
AÍH
Subaru Impreza 0
0 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 0
0 Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir
BÍKR
AÍH
Subaru Impreza 0
0 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 0

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
0 Elísa Rún Hilmarsdóttir
Aðst: Hilmar B Þràinsson
AÍH
AÍH
Toyota Yaris 0

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
0 Kristinn Valgeir Sveinsson
Aðst: Jón Gunnar Kristjánsson
AÍH
AÍH
Jeep Cherokee Lazy One 0