Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#14 - 27. June 2026 kl: 15:28
Lokaúrslit

Dómnefnd staðfestir lokaúrslit keppninnar samanber meðfylgjandi skjal


Frá: Keppnisstjóra - Til: Allra

#13 - 27. June 2026 kl: 14:46
Bráðabirgðaúrslit

Sjá meðfylgjandi skjal sem sýnir bráðabirgðaúrslit.

Kærufrestur er 30 mín og hefst við birtingu þessa upplýsingakjals.

Keppendur eru minntir á heimild sína til kæru skv. grein 13 í Reglubókinni.

Hala niður viðhengi

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#12 - 27. June 2026 kl: 00:24
Áhöfn á bifreið #2 mætti ekki á keppendafund

Til samræmis við grein 9.1 í sérreglum Miðsumarsralls haldið 27. júní 2026, sem hljóðar svo:

Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.

og grein 9.1.a sem hljóðar svo:

Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

þá kemur skýrt fram að það er skylda keppenda að sitja þennan fund.  

Áhöfn bifreiðar #2, né fulltrúi hennar, var á keppendafundi sem auglýstur var 18:30 í upplýsingaskýrslu #6 dagsettri þann 23. júní 2026 kl: 12:45.  Fundinum seinkaði vegna seinkunar skoðunar, en var haldinn á auglýstum stað, Orku, Stórhöfða 37.

Áhöfn með jafn mikla keppnisreynslu í rally og reglum þeim sem þar gilda á ganga á undan með góðu fordæmi og mæta á keppendafund.  Áhöfnin á að vita að tilmæli og leiðbeiningar keppnisstjóra, sem fram koma á keppendafundi eru ígildi upplýsingaskýrsla og ber að fara eftir þeim.  Þannig að sitja ekki fundinn getur þýtt að mikilvægar upplýsingar komast ekki til skila, kannski með alvarlegum afleiðingum..

Eins og kemur fram í grein 9.1.a í sérreglum keppninnar þá segir að refsing fyrir að mæta ekki á keppendafund geti varðað brottvísun úr keppni.

Dómnefnd áminnir því áhöfn bifreiðar #2 fyrir það að hafa ekki mætt á keppendafund þann 27. júní 2026, sem ráðger var kl. 18:30 en seinkaði.

Aðilar eru minntir á heimild sína til kæru samkvæmt grein 13 í Reglubókinni.

 


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#11 - 26. June 2026 kl: 23:47
Niðurstaða keppnisskoðunar

Dómnefnd hefur fengið skýrslu skoðunarmanns sem staðfestir að allir utan áhöfn á bifreið #2 hafi staðist skoðun.  

Athugasemdir við bifreið #2 voru að ökuskírteini ökumanns var ekki framvísað, keppnismerkingar bifreiðar var ábótavant og það vantaði öryggisþríhyrninga í bifreiðina.

Skoðunarmaður ákvað að endurskoðun færi fram kl. 8:00 að morgni 27. júní 2026 við upphaf keppninnar við gatnamót vega 52 og 550.


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

#10 - 26. June 2026 kl: 23:41
Staðreyndadómarar

Staðreyndadómarar í þessari keppni eru starfsmenn tímavarðstöðva, undanfari 0 og 00 og eftirfari


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#9 - 25. June 2026 kl: 23:15
Skoðun bifreiðar #6

Dómnefnd hefur borist beiðni um að keppnisskoðun bifreiðar megi fara fram síðar vegna tafa á afhendingu varahluta.  Sé skoðunarmaður samþykkur þá samþykkir dómnefnd fyrir sína hönd þessa frestun skoðunar.


Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#8 - 24. June 2026 kl: 17:27
Breyting á rásröð

Hala niður viðhengi

Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#7 - 24. June 2026 kl: 15:15
Rásröð

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#6 - 23. June 2026 kl: 12:45
Uppfærð dagskrá

22. júní – Skráningu lýkur kl. 17:00

23. júní – Rásröð birt kl. 20:00

26. júní – Keppnisskoðun kl. 18:00 – Orka - Stórhöfða 37

26. júní – Keppendafundur kl 18:30 - Orka - Stórhöfða 37

26. júní – Starfsmannafundur kl. 19:00 í Orka - Stórhöfða 37

27. júní – Keppnisskoðun fyrir þá bíla sem ekki fengu skoðun fer fram kl 8:00 á Malarplani við Uxahryggi

27. júní – Keppni hefst við byrjun fyrstu sérleiðar

27. júní – Keppnislok við lok sérleiðar á malarplani við Uxahryggi 


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#5 - 23. June 2026 kl: 12:00
Leiðabók

Hér kemur leiðabókin

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#4 - 22. June 2026 kl: 13:56
Uppfærð dagskrá og tímamaster

Bættum við tímamaster með þjónustubanni og ofurleið

 

22. júní – Skráningu lýkur kl. 17:00

25. júní – Rásröð birt kl. 10:00

26. júní – Keppnisskoðun kl. 18:00 – Orka - Stórhöfða 37

27. júní – Keppendafundur kl 18:30 - Orka - Stórhöfða 37

26. júní – Starfsmannafundur kl. 19:00 í Orka - Stórhöfða 37

27. júní – Keppnisskoðun fyrir þá bíla sem ekki fengu skoðun fer fram kl 8:00 á Malarplani við Uxahryggi

27. júní – Keppni hefst við byrjun fyrstu sérleiðar

27. júní – Keppnislok við lok sérleiðar á malarplani við Uxahryggi 

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#3 - 22. June 2026 kl: 13:17
Nýr tímamaster - birtur með fyrirvara

Við biðjumst afsökunar á seinaganginum varðandi Rally-keppnina 27. júní.

Upphaflega leiðin er því miður enn ófær vegna snjóa og því þurftum við að taka upp Plan B, það hefur valdið töfum þar sem enn er verið að klára öll nauðsynleg leyfi fyrir Kaldadal og Uxahryggi.

Við birtum því tímamaster með fyrirvara um endanlega staðfestingu leyfa.

Takk fyrir þolinmæðina og skilninginn – við uppfærum ykkur um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#2 - 17. June 2026 kl: 13:14
Breyting á keppni

Upplýsingar um rallið 27. júní
Jökulháls og Prestahraun eru enn ófær vegna snjóa, við reyndum að fá þetta mokað en magnið af snjó er of mikið og því er unnið að því að setja upp rall á Kaldadal og Uxahryggjum. Nú er verið að sækja um tilskilin leyfi fyrir þeim leiðum.
Ef leyfisveitingar ganga ekki eftir þurfum við að endurskoða tímasetningar og lengd keppninnar út frá þeim leiðum sem við höfum nú þegar leyfi fyrir og eru færar á Snæfellsnesi.
Við munum upplýsa um endanlegt fyrirkomulag um leið og staðan skýrist. Við þökkum fyrir þolinmæðina og skilninginn.


Frá: Keppnisstjóra - Til: Allra

#1 - 8. June 2026 kl: 20:31
1# Tímamaster

Hala niður viðhengi