Upplýsingar um rallið 27. júní
Jökulháls og Prestahraun eru enn ófær vegna snjóa, við reyndum að fá þetta mokað en magnið af snjó er of mikið og því er unnið að því að setja upp rall á Kaldadal og Uxahryggjum. Nú er verið að sækja um tilskilin leyfi fyrir þeim leiðum.
Ef leyfisveitingar ganga ekki eftir þurfum við að endurskoða tímasetningar og lengd keppninnar út frá þeim leiðum sem við höfum nú þegar leyfi fyrir og eru færar á Snæfellsnesi.
Við munum upplýsa um endanlegt fyrirkomulag um leið og staðan skýrist. Við þökkum fyrir þolinmæðina og skilninginn.