Frá: Dómnefnd - Til: Allra

27. June 2026 kl: 00:24 - Áhöfn á bifreið #2 mætti ekki á keppendafund

Til samræmis við grein 9.1 í sérreglum Miðsumarsralls haldið 27. júní 2026, sem hljóðar svo:

Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.

og grein 9.1.a sem hljóðar svo:

Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

þá kemur skýrt fram að það er skylda keppenda að sitja þennan fund.  

Áhöfn bifreiðar #2, né fulltrúi hennar, var á keppendafundi sem auglýstur var 18:30 í upplýsingaskýrslu #6 dagsettri þann 23. júní 2026 kl: 12:45.  Fundinum seinkaði vegna seinkunar skoðunar, en var haldinn á auglýstum stað, Orku, Stórhöfða 37.

Áhöfn með jafn mikla keppnisreynslu í rally og reglum þeim sem þar gilda á ganga á undan með góðu fordæmi og mæta á keppendafund.  Áhöfnin á að vita að tilmæli og leiðbeiningar keppnisstjóra, sem fram koma á keppendafundi eru ígildi upplýsingaskýrsla og ber að fara eftir þeim.  Þannig að sitja ekki fundinn getur þýtt að mikilvægar upplýsingar komast ekki til skila, kannski með alvarlegum afleiðingum..

Eins og kemur fram í grein 9.1.a í sérreglum keppninnar þá segir að refsing fyrir að mæta ekki á keppendafund geti varðað brottvísun úr keppni.

Dómnefnd áminnir því áhöfn bifreiðar #2 fyrir það að hafa ekki mætt á keppendafund þann 27. júní 2026, sem ráðger var kl. 18:30 en seinkaði.

Aðilar eru minntir á heimild sína til kæru samkvæmt grein 13 í Reglubókinni.