Frá: Dómnefnd - Til: Allra

25. July 2026 kl: 16:04 - Frestun á bráðabirgðaúrslitum

Á fundi með keppnishöldurum fyrir upphaf keppnistímabilsins var ákveðið að nota rafrænan tímatökubúnað til prófunar, en notast við handvirka skráningu tíma.

Þar sem ekki var tilgreint í sérreglum keppninnar að notast yrði við rafrænan búnað og auk þess sem ekki allir tímar skráðust í rafrænt kerfi, þá hefur dómnefnd ákveðið að notast verði við handvirka skráningu.

Birting bráðabirgðaúrslita frestast því til kl 16:25.

Tryggvi M Þórðarson, formaður,
Arnar Smári Signýjarson
Viktor Aron Böðvarsson