Sæl verið þið.
Í ljósi þess að við þurftum að færa Íslandsmótskeppnina sem átti að vera á laugardag yfir á sunnudag þá erum við að hliðra dagkránni aðeins eins og sjá má á eftirfarandi tímalínu.
Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
14.30 móttaka keppenda hefst
14.45 skoðun hefst
15:00 pittur lokar
15.30 skoðun lýkur
15.45 keppendafundur
16.00 tímatökur hefjast
16.45 tímartökum lýkur
17:00 keppni hefst
18:30 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar
19:00 kærufresti lýkur
Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki
Eins og fyrr segir er þetta áætluð dagskrá en í ljósi þess að megnið af keppendum í bikarmóti eru einnig í Íslandsmóti þá áskiljum við okkur rétt til að flýta dagskrá ef þurfa þykir