Stjórnstöð keppninnar: verður í Vélaval í Varmahlíð á meðan á keppni stendur.
Merkingar þjónustubifreiða: Keppendur merki þjónustubifreiðar(service) á keppnisdegi með rásnúmeri viðkomandi áhafnar. Merkja skal með áberandi hætti t.d í hliðarrúður.
Framkvæmdanefnd/keppnisstjórn:
-Keppnisstjóri/brautarstjóri: Óskar Aron Stefánsson s: 869 1372, Netfang ljomarally26@gmail.com
-Starfsmannastjóri og tengiliður keppenda: Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson, s: 897 9470, netfang: sigurjonheidarsig04@gmail.com
-Umhverfisfulltrúi: Guðmundur Kr. Sigurbjörnsson, s: 892 4677, netfang: gsb@vegagerdin.i
-Skoðunarmaður: Kristinn Sveinsson, s: 898 2025, netfang: tjonaskodun@tjonaskodun.is
-Öryggisfulltrúi: Ari Halldór Hjaltason s: 7726862, netfang:
Dómnefnd:
Formaður dómnefndar er Tryggvi M Þórðarson, Arnar Smári Signýjarson, Viktor Böðvarsson
Að keppni lokinni:
Verðlaunaafhending er við Vélaval, strax eftir keppni.
Birt með fyrirvara um villur og ófyrirsjáanlegar breytingar
Ljómarallý í Skagafirði 25.-26. júlí 2025
Dagskrá:
Miðvikudagur 8. júlí - Skráning hefst. Tímaáætlun og leiðalýsing birt með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar. Keppnisgjald er kr. 17.500 - per ökumann. Alls kr. 35.000 á áhöfn.
Engin starfsmannakvöð er í þessari keppni. Keppendur greiða viðbótargjald til AKÍS vegna keppnisskírteina og verða að auki að hafa greitt félagsgjald til síns akstursíþróttafélags.
Miðvikudagur 8. júlí - Reglur um könnun sérleiða (leiðaskoðun) taka gildi. Tilkynna þarf fyrirfram um leiðaskoðun með tölvupósti á netfangið ljomarally26@gmail.com Þar komi fram hvenær áhöfn hyggst leiðaskoða, svo og númer, litur, og gerð skoðunarbifreiðar. Heimilt er hverri áhöfn að fara tvær ferðir (í hvora átt) um hverja sérleið, þ.e. tvær ferðir í hvora átt um Mælifellsdal og Vesturdal. Gæta skal varúðar og virða umferðarreglur. Brotum á framangreindum takmörkunum verður vísað til dómnefndar.
Laugardagur 18. júlí - Skráningu lýkur kl. 17:00.
Mánudagur 20. júlí - Rásröð birt kl. 22:00.
Fimmtudagur 23. júlí - Starfsmannafundur kl. 20:00 í Vélaval í Varmahlíð.
Föstudagur 24. júlí - Keppnisskoðun kl. 18:00 við Vélaval í Varmahlíð áhafnir fyrstu tíu bíla í rásröð mæta kl. 18:00. Áhafnir þeirra bíla sem eru nr. 11 eða síðar í rásröð mæta kl. 19:00.
Föstudagur 24. júlí - Fundur með keppendum kl. 20:00 við Vélaval í Varmahlíð.
Laugardagur 25. júlí - Skoðun keppnistækja sem fengið hafa athugasemdir við keppnisskoðun (ef þarf) kl. 07:00 við Vélaval í Varmahlíð.
Laugardagur 25. júlí - Park fermé keppnistækja við Vélaval í Varmahlíð kl. 07:30 - 07:45.
Laugardagur 25. júlí - Ræsing kl. 08:00 frá Vélaval í Varmahlíð.
Laugardagur 25. júlí - Endamark við Vélaval í Varmahlíð kl. 15:05. Bráðabirgðaúrslit kynnt 15:35. Kærufrestur hefst og er 30 mínútur
Laugardagur 25. júlí - Verðlaunaafhending: Við Vélaval, strax eftir keppni.
BS
Keppnisstjóri: Óskar Aron Stefánssson
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Kristinn Valgeir Sveinsson
Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson
Dómnefnd 1: Arnar Smári Signýjarson
Dómnefnd 2: Viktor Böðvarsson
Framkvæmdanefnd:
Framkvæmdanefnd skipa Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson s: 897 9470, netfang: sigurjonheidarsig04@gmail.com og Eyþor Jónatansson s:8693736 netfang: eythor.jonatans05@gmail.com
Keppnisstjórn / Brautarstjóri: Keppnisstjóri: Óskar Aron Stefánsson, s: 8691372, netfang: oskararon04@gmail.com
Starfsmannastjóri og tengiliður keppenda:Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson, s: 897 9470, netfang: sigurjonheidarsig04@gmail.com*
Umhverfisfulltrúi: Guðmundur Kr. Sigurbjörnsson, s: 892 4677, netfang: gsb@vegagerdin.is
25. July 2026 kl: 08:00
Sérleiðir í rally
Lýsing:
Rally
Íslandsmeistaramót - 3. Umferð
Skráning hefst: 7. July 2026 kl: 10:00
Skráningu lýkur: 19. July 2026 kl: 17:00
Flokkur A
Flokkur C
Flokkur E - Eindrif-1000 m3
Flokkur E - Eindrif-1400 m3
Flokkur E - Eindrif-X
Flokkur J - Jeppaflokkur
Í meðfylgjandi viðhengi eru lokaúrslit keppninnar.
Tryggvi M Þórðarson, formaður
Arnar Smári Signýjarson
Viktor Aron Böðvarsson
Í viðhenginu eru bráðabirgðaúrslit samkvæmt handvirkum tímatökum.
Á fundi með keppnishöldurum fyrir upphaf keppnistímabilsins var ákveðið að nota rafrænan tímatökubúnað til prófunar, en notast við handvirka skráningu tíma.
Þar sem ekki var tilgreint í sérreglum keppninnar að notast yrði við rafrænan búnað og auk þess sem ekki allir tímar skráðust í rafrænt kerfi, þá hefur dómnefnd ákveðið að notast verði við handvirka skráningu.
Birting bráðabirgðaúrslita frestast því til kl 16:25.
Tryggvi M Þórðarson, formaður,
Arnar Smári Signýjarson
Viktor Aron Böðvarsson
Hæ, her i viðhengi koma bráðabirgðaúrslit og kærufrestur hefst. Honum líkur klukkan 16:05
Eftirfarandi áhafnir (Jóhann Ingi Fylkisson og Helena Ósk Elvarsdóttir á Evo. Agnar Ingi Sigurðsson og Ísak Guðjónsson á Ford Fiesta) hafa fengið undanþágu á að mæta í keppnisskoðun klukkan 18:00 í dag. Nýji tíminn er klukkan 07:00
Hæ, hér í viðhengi er uppfærð rásröð (eftir ábendingu). Bestu kveðjur framkvædanefnd Ljómarallý
Hæ, hér í viðhengi er uppfærð rásröð. Bestu kveðjur framkvædanefnd Ljómarallý
Hæ, hér eru hlekkir inná leiðarlýsingunna og tímaáætluninna. Birt með fyrirvara um villur og ófyrirsjáanlegar breytingar
Leiðarlýsing: https://docs.google.com/document/d/1EbPUiFokm9oUlxOxDNKWwuBCpjFG5utd/edit?usp=drivesdk&ouid=116389774731784047165&rtpof=true&sd=true
Tímaáætlun: https://docs.google.com/document/d/1jfhsYdTLBI26SkpAj6Ld0qVXDa6d3MxlbIGY672RDds/edit?usp=drivesdk
1.1 Keppnin heitir Ljómarallý í Skagafirði og er 3. umferð Íslandsmótsins í rally 2026.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram Sérleiðir í rally og nágrenni 25. júlí 2026 skv. auglýstri dagskrá.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kost 10 skráningar við lok skráningarfrests.
1.7 Ljómarallý í Skagafirði er einn áfangi
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Skagafjarðar, til heimilis að Furuhlíð 6 550 Sauðárkrókur
3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson, Óskar Aron Stefánsson og Eyþór Jónatansson.
3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar er Óskar Aron Stefánsson
3.2 Framkvæmdanefndar keppninnar er til heimilis í Furuhlíð 6 550 Sauðárkrókur.
3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 8691372
3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er ljomarally26@gmail.com.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur C
4.1.2 Flokkur E – Eindrif 1000 m3
4.1.3 Flokkur E – Eindrif 1400 m3
4.1.4 Flokkur E – Eindrif X
4.1.5 Flokkur J – Jeppaflokkur TO
4.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
4.3 Aðeins verður keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.
5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.
5.4 Skráningu lýkur þann 2026-07-19 17:00:00 kl. 17:00.
5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru eru samþykktar í þessari keppni.
5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 49.000 per áhöfn
5.6.a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.
5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.a þátttökurétt í keppninni.
5.7.b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.
5.7.c Gjald fyrir noktun tímatökubúnaðs.
6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.
7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/573.
8.1.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.
9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
9.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.
9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur og eftir atvikum áfrýjun samkvæmt Reglubók FIA, grein 13 og keppnisgreinareglum fyrir Rallý.
9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Fyrsta ökutæki verður ræst kl. 8:00 samkvæmt tímaáætlun.
10.2.1.a Önnur ökutæki verða ræst með einnar <1> mínútna millibili.
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.
10.2.2.a Tímaverðir munu telja niður að rástíma inn á sérleiðar.
11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.
11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
11.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt tímaáætlun.
11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur staðfest þau.
12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.
12.2 Verðlaun verða veitt fyrir 1. sæti, 2 og 3 í öllum flokkum samkvæmt lokaúrslitum.
GREIN 13.1 DÓMNEFND
13.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Arnar Smári Signýjarson og Viktor Böðvarsson.
GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN
13.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Óskar Aron Stefánssson.
13.2.2 Skoðunarmaður er Kristinn Valgeir Sveinsson.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldor Hjaltsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson.
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er Guðmundur Kr. Sigurbjörnsson.
13.2.6 Starfsmannastjóri er Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson.
13.2.7 Tengiliður keppenda er Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson.
GREIN 13.3 STAÐREYNDADÓMARAR
13.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.
14.1 Könnun sérleiða er leyfð.
14.2 Reglur um könnun sérleiða (leiðaskoðun) taka gildi þegar skráningarfrestur hefst, samkvæmt dagskrá keppninnar.
14.3 Tilkynna þarf fyrirfram um leiðaskoðun með tölvupósti á netfangið ljomarally26@gmail.com. Í tilkynningu komi fram hvenær áhöfn hyggst leiðaskoða, svo og númer, litur og gerð skoðunarbifreiðar.
14.4 Heimilt er hverri áhöfn í leiðaskoðun að fara tvær ferðir (í hvora átt) um hverja sérleið, þ.e. tvær ferðir í hvora átt um Mælifellsdal og Vesturdal. Gæta skal varúðar og virða umferðarreglur.
14.5 Brotum á framangreindum reglum og takmörkunum vegna leiðaskoðunar verður vísað til dómnefndar, viðurlög skv. grein 3.3.7 í keppnisgreinarreglum fyrir Rally.
15.1 Viðgerðir og þjónusta við keppnistæki er heimil á meðan á keppni stendur nema:
15.1.a Í parc fermé s.s. í tímastöðvum, fyrir ræsingu og á meðan á kærufresti stendur.
15.1.b Milli sérleiða nr. 5 (Vesturdalur 1) og 6 (Vesturdalur 2)
15.1.c Þar sem keppnisreglur bjóða annað.
15.1.d Brotum á framangreindum ákvæðum verður vísað til dómnefndar og getur varðað brottvísun úr keppni
16.1 Engar hindranir eru á sérleiðum til að draga úr hraða ökutækja.
17.1 Ofurleiðin í þessari keppni er sérleið nr. 6 heitir Vesturdalur 2
18.1 Keppnishaldari mun nýta rétt sinn samkvæmt grein 7.3.1 í Keppnisgreinareglum fyrir rally til að selja auglýsingar á ökutæki.
18.2 Þau svæði á ökutækjum sem keppnishaldari hyggst nýta eru á framhurðum keppnistækja, sbr. keppnisgreinareglur AKÍS fyrir rally grein: 7.3.2.a og 7.3.2.b
18.3 Keppandi sem ekki vill merka keppnistæki sitt með auglýsingu frá keppnishaldara skal greiða keppnishaldara kr. 30.000 skv. grein 7.3.1.b.i í keppnisgreinareglum AKÍS fyrir rally og skal sú greiðsla innt af hendi fyrir ræsingu keppninnar.
19.1 Ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu vera með rafrænan TOS frá keppnishaldara alla keppnina.
19.1.1 Ísetning á TOS fer fram við skoðun ökutækja, og verður framkvæmd af fulltrúum keppnishaldara.
19.2 Öll ökutæki skulu hafa eftirfarandi búnað fyrir TOS við skoðun:
19.2.1 RAM® kúlu festingu, stærð B, til að festa TOS í ökutækið. Hún skal vera þannig staðsett á/í mælaborði ökutækis að LED-ljósið á TOS tækinu sé sýnilegt og það verði aðgengileg áhöfn ökutækis.
19.2.2 Rafmagnssnúru með Deutsch DTM06-6S (e. female) endatengi sem er innan 20 cm frá RAM® kúlu festingunni.
19.2.2.a Pinni 1 skal tengdur við +12V DC spennu og pinni 4 við mínus (jörð) með að lágmarki 0,5q (kvaðrat) vír.
19.2.2.b +12V spennuvírinn skal varinn með 5A öryggi.
19.2.2.c Rafmagn til tengisins skal aftengjast þegar aðalrofi (höfuðrofi / e. master switch) er slökktur.
19.2.3 Viðeigandi RAM® tengiarm (e. connecting socket arm) til að tengja TOS við ökutækið.
19.3 TOS boxið sjálft er 200 mm x 550 mm x 36 mm að umfangi. RAM® kúlu festing, stærð B, er föst neðan á tækinu og stendur hún um það bil 35 mm út úr því.
19.4 Nákvæmar rekstrarupplýsingar fyrir TOS verða birtar á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun.
19.5 Ekki er heimilt að aftengja TOS eða fjarlægja úr ökutæki nema þegar áhöfn viðkomandi ökutækis er hætt keppni og skila á búnaðinum til keppnishaldara.
19.6 Við lok keppni ber að aftengja tækið og skila því til keppnishaldara.
20.1 Allt starfsfólk keppninnar annast verkefni sín í sjálfboðavinnu.
20.2 Starfsfólk skal leitast við að sinna störfum sínum af kostgæfni, með fagmennsku og ánægju allra sem að keppnishaldinu og umgjörð þess koma, að leiðarljósi.
20.3 Keppendum, áhöfnum og aðstoðarfólki þeirra ber að sýna starfsfólki, og öðrum sem tengjast keppnishaldinu og umgjörð þess, virðingu og kurteisi. Óíþróttamannsleg hegðun getur varðað brottvísun úr keppni og/eða öðrum refsingum, sbr. m.a. grein 3.6.7. í keppnisgreinarreglum fyrir Rallý og 12.2.1 í reglum FIA.
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 |
Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson |
BÍKR BÍKR |
22 | ||
| 2 |
Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson |
BÍKR BÍKR |
Subaru Impreza | 16 | |
| 3 |
Daníel Sigurðarson
Aðst: Ásta Sigurðardóttir |
AÍH BÍKR |
Skoda Super 2000 | 15 | |
| 4 |
Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson |
BÍKR AÍH |
Mitsubishi Lancer EVO | 10 | |
| 5 |
Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson |
BÍKR AÍFS |
Ford Fiesta | 9 | |
| 6 |
Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir |
AÍFS KK |
Mitsubishi Evo 5 | 6 | |
| 7 |
Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson |
AÍH AÍH |
Subaru impreza | 4 | |
| 8 |
Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson |
AÍFS AÍFS |
Subaru impreza | 3 | |
| 9 |
Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson |
BÍKR BÍKR |
Subaru Impreza | 2 | |
| 10 |
Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir |
BÍKR AÍH |
Subaru Impreza | 0 | |
| 11 |
Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson |
BÍKR BÍKR |
Ford Fiesta R5 | 0 | |
| 12 |
Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir |
AÍH AÍH |
Evo | 0 | |
| 13 |
Kristinn Valgeir Sveinsson
Aðst: Jon Gunnar Kristjansson |
AÍH AÍH |
Jeep Cherokee Lazy One | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 |
Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson |
BÍKR BÍKR |
Subaru Impreza | 0 | |
| 2 |
Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson |
BÍKR AÍFS |
Ford Fiesta | 0 | |
| 3 |
Daníel Sigurðarson
Aðst: Ásta Sigurðardóttir |
AÍH BÍKR |
Skoda Super 2000 | 0 | |
| 4 |
Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir |
AÍFS KK |
Mitsubishi Evo 5 | 0 | |
| 5 |
Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson |
BÍKR AÍH |
Mitsubishi Lancer EVO | 0 | |
| 6 |
Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson |
BÍKR BÍKR |
Ford Fiesta R5 | 0 | |
| 7 |
Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson |
BÍKR BÍKR |
0 | ||
| 8 |
Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson |
BÍKR BÍKR |
Subaru Impreza | 0 | |
| 9 |
Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir |
AÍH AÍH |
Evo | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 |
Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson |
AÍH AÍH |
Subaru impreza | 23 | |
| 2 |
Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson |
AÍFS AÍFS |
Subaru impreza | 17 | |
| 3 |
Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir |
BÍKR AÍH |
Subaru Impreza | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Keppnistæki | Lið | Stig |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 |
Kristinn Valgeir Sveinsson
Aðst: Jon Gunnar Kristjansson |
AÍH AÍH |
Jeep Cherokee Lazy One | 0 |