Rally Reykjavík 2026

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: bikr@bikr.is

Lýsing

Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjvíkur heldur 4 umferð Íslandsmótsins í Rally. 

Dagskrá

Dagskrá

Dagskrá Rallý Reykjavík 2026.

 

5. Ágúst – Skráning hefst (keppnisgjald 44.500, - kr pr. ökumann) 103.000 með öllum gjöldum per áhöfn

Tímamaster birtur

17. Ágúst – skráningu lýkur kl. 17:00

17. Ágúst – Rásröð birt

20. Ágúst – Keppnisskoðun (staðsetning auglýst síðar) kl. 18:00

Minni á að refsing er gefin fyrir að mæta of seint í keppnisskoðun. (Refsing 10 sek fyrir hverja byrjuðu mínútu)

20. Ágúst – Keppendafundur að lokinni keppnisskoðun (staðsetning auglýst síðar).
Skyldumæting er á fundinn, ef keppandi sér sig ekki fært um að mæta skal hann senda formlegt bréf sem inniheldur ástæðu fyrir fjarvistinni á keppnisstjóra fyrir fundinn.

Vinsamlegast virðið tímasetningu og mætið á réttum tíma.

20. Ágúst – Starfsmannafundur að loknum keppendafundi, (staðsetning auglýst síðar).

21. Ágúst – Keppni byrjar.
Parkc Fermé lokar 16:30
Parkc Fermé opnar 16:45
Fyrsti Bíll kl.17:00

22. Ágúst – Ræsing úr næturhléi 6:00

Parkc Fermé Opnar kl. 5:45


23. Ágúst

 Ræsing úr næturhléi 7:00

Parkc Fermé Opnar kl. 06:45

 

  • Allar tímasetningar sem eru hér að ofan skulu keppendur virða, ef keppendur koma seint er það tekið fyrir hjá dómnefnd og áhöfn fær refsingu fyrir sitt brot.
  • Brot á fyrrnefndum bönnum varðað brottvísun úr keppni
  • Dagskrá gæti breyst og verður það tilkynnt í upplýsingarskýrslu.

Skipuleggjandi

BÍKR

Keppnisstjóri: Linda Dögg Jóhannsdóttir

Aðstoðarkeppnisstjóri: Kristín Kristinsdóttir

Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson

Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson

Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson

Dómnefnd 1: Heiða Karen Fylkisdóttir

Dómnefnd 2: Guðmundur Örn Þorsteinsson

Framkvæmdanefnd:
Linda Dögg Jóhannsdóttir ásamt stjórn BÍKR

Dagsetningar

Frá: 21. August 2026 kl: 17:00
Til: 23. August 2026 kl: 15:00

Brautir og vegalengdir

Sérleiðir í rally
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Rally

Íslandsmeistaramót - 4.umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 5. August 2026 kl: 10:00

Skráningu lýkur: 17. August 2026 kl: 17:00

Flokkar

Flokkur A

Flokkur C

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#17 - 23. August 2026 kl: 16:24
Lokaúrslit

Engar kærur bárust í kærufresti.

Lokaúrslit eru því:

Sæti Rásnr Áhöfn Bifreið Flokkur Tími
1 1 Baldur & Heimir Subaru Impreza A 02:52:33
2 3 Jósef & Gunnar Mitsubishi Evo VI A 03:02:32
3 5 Skafti & Adam Mitsubishi Lancer Evo A 03:05:19
4 7 Björgólfur & Hergill Subaru Impreza C 03:19:01
5 29 Stefán & Atli Subaru Impreza C 03:28:21
6 69 Hanna & Vigdís Subaru Impreza C 04:27:55
7 13 Pálmi & Trausti Volvo 940 C 04:54:29

Dómnefnd:
Tryggvi M Þórðarson, formaður
Guðmundur Örn Þorsteinsson,
Heiða Karen Fylkisdóttir


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#16 - 23. August 2026 kl: 15:23
Athugasemd við akstur áhafnar á bifreið #7

Dómnefnd barst athugasemd við akstur áhafnar bifreiðar númer 7 á fyrstu ferjuleið dagsins vegna framúraksturs.

Dómnefnd kallaði áhöfnina til viðtals kl 15:10.  Í því viðtali var farið yfir málsatriði og rætt um umferðarlög og nauðsyn þess að fylgja þeim á ferjuleiðum.

Voru þeir áminntir fyrir aksturinn lögð áhersla á að þetta gerðist ekki aftur

Dómnefnd


Frá: Keppnisstjóra - Til: Keppenda

#15 - 23. August 2026 kl: 15:23
Bráðabirgðarúrslit

1.sæti - Baldur - Heimir

2.sæti - Jósef - Gunnar

3.sæti - Skafti - Adam

Flokkur C

1.sæti - Björgólfur - Hergill

2.sæti - Stefán - Atli

3.sæti - Hanna - Vigdís

 

Kærufrestur hefst


Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#14 - 22. August 2026 kl: 19:54
Rásröð leg 4

Rásnr. Nr. Á bíl Ökumaður Aðstoðarökumaður Bíltegund Flokkur
1 1 Baldur Arnar Hlöðversson Heimir Snær Jónsson Subaru Impreza A
2 17 Ingvi Björn Birgisson Valgarður Davíðsson Ford Fiesta A
4 3 Jósef Heimir Guðbjörnsson Gunnar Eyþórsson Mitsubishi Evo VI A
8 5 Skafti Svavar Skúlason Adam Máni Valdimarsson Mitsubishi Lancer Evo A
9 7 Björgólfur Bersi Kristinsson Hergill Henning Kristinsson Subaru Impreza C
10 29 Stefán Borgar Magnússon Atli Þór Höskuldsson Subaru Impreza C
12 13 Pálmi Snær Sveinsson Trausti Freyr Sveinsson Volvo 940 C
6 9 Halldór Víkingur Guðbrandsson Sigurgeir Guðbrandsson Subaru Impreza A
11 69 Hanna Rún Ragnarsdóttir Vigdís Pála Þórólfsdóttir Subaru Impreza C

Hala niður viðhengi

Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#13 - 22. August 2026 kl: 12:50
Rásröð leg 3

1 1

Baldur & Heimir

Subaru Impreza A
2 17

Ingvi & Valli

Ford Fiesta A
3 3

Jósef & Gunnar

Mitsubishi Evo VI A
4 5

Skafti & Adam

Mitsubishi Lancer Evo A
5 9

Halldór & Sigurgeir

Subaru Impreza H6 A
6 7

Björgólfur & Hergill

Subaru Impreza A
7 29

Stefán & Atli

Subaru Impreza C
8 13

Pálmi & Trausti

Volvo 940 C
9 69

Hanna & Vigdís

Subaru Impreza C


Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#12 - 22. August 2026 kl: 00:06
BREYTT Rásröð leg 2

   
   
   
Rásnr. Nr. Á bíl Ökumaður Aðstoðarökumaður Bíltegund Flokkur
1 1 Baldur Arnar Hlöðversson Heimir Snær Jónsson Subaru Impreza A
2 17 Ingvi Björn Birgisson Valgarður Davíðsson Ford Fiesta A
3 15 Rúnar Ólafsson Robbie Sandford Ford Fiesta R5 A
4 3 Jósef Heimir Guðbjörnsson Gunnar Eyþórsson Mitsubishi Evo VI A
5 6 Jóhann Ingi Fylkisson Helena Elvarsdóttir Mitsubishi Lancer Evo A
6 9 Halldór Víkingur Guðbrandsson Sigurgeir Guðbrandsson Subaru Impreza A
7 2 Agnar Ingi Sigurðsson Ísak Guðjónsson Ford Fiesta A
8 5 Skafti Svavar Skúlason Adam Máni Valdimarsson Mitsubishi Lancer Evo A
9 7 Björgólfur Bersi Kristinsson Hergill Henning Kristinsson Subaru Impreza C
10 29 Stefán Borgar Magnússon Atli Þór Höskuldsson Subaru Impreza C
12 13 Pálmi Snær Sveinsson Trausti Freyr Sveinsson Volvo 940 C
11 69 Hanna Rún Ragnarsdóttir Vigdís Pála Þórólfsdóttir Subaru Impreza C

Hala niður viðhengi

Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#11 - 21. August 2026 kl: 22:55
ræasröð leg 2

Hala niður viðhengi

Frá: Keppnisstjóra - Til: Keppanda

#10 - 21. August 2026 kl: 22:50
Rásröð leg 2

Hér er rásröð fyrir leg 2


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#9 - 21. August 2026 kl: 15:10
Grein 10.2.1 i sérreglum keppninnar

Í tímaáætlun keppninnar og grein 10.2.1 er misræmi á milli rástíma fyrsta ökutækis.

Tíminn í sérreglunum er rangur.  Réttur rástími fyrsta ökutækis er kl. 17:00 þann 21. ágúst 2026.

Dómnefnd


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#8 - 19. August 2026 kl: 22:28
uppfærð leiðabók

Hér kemur uppfærð leiðabók með uppfærðum upplýsingum um ferjun keppnisbifreiða

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

#7 - 18. August 2026 kl: 20:33
Leiðaskoðun

Leiðaskoðun fyrir Glaðheima verður að lokinni keppnisskoðun á fimmtudaginn.

 

 


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#6 - 18. August 2026 kl: 10:04
Keppnisskoðun

Keppnisskoðun verður hjá  Orka Stórhöfða - Fimmtudaginn 20.ágúst kl 18:00 

Þegar búið er að skoða alla bílana verður keppandafundur og starfsmannafundur í kjölfarið.


Frá: keppnisstjóra - Til: Keppanda

#5 - 17. August 2026 kl: 23:53
Rásröð

1 1 Baldur Arnar Hlöðversson Heimir Snær Jónsson Subaru Impreza A
2 17 Ingvi Björn Birgisson Valgarður Davíðsson Ford Fiesta A
3 2 Agnar Ingi Sigurðsson Ísak Guðjónsson Ford Fiesta A
4 5 Skafti Svavar Skúlason Adam Máni Valdimarsson Mitsubishi Lancer Evo A
5 9 Sigurður Arnar Pálsson Halldóra Rut Jóhannsdóttir Mitsubishi Evo 5 A
6 15 Rúnar Ólafsson Robbie Sandford Ford Fiesta R5 A
7 6 Jóhann Ingi Fylkisson Helena Elvarsdóttir Mitsubishi Lancer Evo A
8 3 Jósef Heimir Guðbjörnsson Gunnar Eyþórsson Mitsubishi Evo VI A
9 25 Halldór Víkingur Guðbrandsson Sigurgeir Guðbrandsson Subaru Impreza A
10 7 Björgólfur Bersi Kristinsson Hergill Henning Kristinsson Subaru Impreza C
11 29 Stefán Borgar Magnússon Atli Þór Höskuldsson Subaru Impreza C
12 13 Pálmi Snær Sveinsson Trausti Freyr Sveinsson Volvo 940 C
13 69 Hanna Rún Ragnarsdóttir Vigdís Pála Þórólfsdóttir Subaru Impreza C

Hala niður viðhengi

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#4 - 17. August 2026 kl: 19:21
Nánari upplýsingar vegna greinar 16 í sérreglum keppninnar (flutningu keppnisbifreiða á kerru)

Dómnefnd og framkvæmdanefnd telja nauðsynlegt að skilgreina betur á hvaða ferjuleiðum má ferja keppnisbifreiðar á kerru.

  1. Ferjuleið frá næturhléi að Sl-5 (Dómadalur austur).
  2. Ferjuleið frá enda Sl-11 (Bjallahraun) að upphafi Sl-12 (Torfærugryfjur Hellu A).
  3. Ferjuleið frá enda Sl-13 ((Torfærugryfjur Hellu B) að þjónustuhléi við Orku, Stórhöfða, Reykjavík.
  4. Ferjuleið frá næturhléi að Sl-14 (Kaldidalur norður).
  5. Ferjuleið frá enda Sl-17 að upphafi Sl-18 (Djúpavatn norður b).

Á öðrum ferjuleiðum er ekki heimilt að ferja keppnisbifreiðar á kerru.

Tryggvi Magnús Þórðarson, formaður,
Guðmundur Örn Þorsteinsson
Heiða Karen Fylkisdóttir


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#3 - 13. August 2026 kl: 16:11
Tímamaster

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#2 - 12. August 2026 kl: 13:00
Tímamaster

May be an image of text


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#1 - 12. August 2026 kl: 09:30
Leiðabók

Hala niður viðhengi
Skoða allar færslur

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Rally Reykjavík 2026.

1.2 Keppt er í Rally eins og það er skilgreint í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally.

1.3 Keppnin fer fram á á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi 21. Ágúst 2025 til 23. Ágúst 2026.

1.4 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.

1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar fyrir lok skráningarfrests.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Linda Dögg Jóhannsdóttir og stjórn BÍKR.

3.2 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 6962520.

3.3 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er bikr@bikr.is.

GREIN 4 KEPPNISFLOKKAR

Keppt verður í eftirtöldum flokkum

4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur C
4.1.2 Flokkur E – Eindrif
4.1.3 Flokkur TO – Jeppaflokkur

 

GREIN 5 SKRÁNING

5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.

5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

5.4 Skráningu lýkur þann 17. ágúst kl 17:00

5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 100.000 per áhöfn
5.6. a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.

5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7. a þátttökurétt í keppninni og leigu vegna tímatökubúnaðar
5.7. b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.

 

GREIN 6 TRYGGINGAR

6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

 

GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1. a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglugerðir leyfa.

7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.

7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3. a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 8 UPPLÝSINGATAFLA

8.1 Opinber upplýsingatafla keppninnar er staðsett á skráningarformi inná www.mot.akis.is

8.1.a Á þessari töflu verða birtar allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er eða þarft, að miðla til þeirra, þar til keppni lýkur.

 

GREIN 9 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
9.1. a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

 

GREIN 10 RÆSING

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun. 

10.2.1 Fyrsta ökutæki verður ræst 21. ágúst kl. 7:20 samkvæmt tímaáætlun.

10.2.1.a Ökutæki verða ræst með einnar 1 mínútna millibili.

10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.

10.2.2.a Tímaverðir munu telja niður að rástíma inn á sérleiðar.

 

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rallý.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt tímaáætlun.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

11.5 Vægi stiga er 1.5

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.

12.2 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum samkvæmt lokaúrslitum.

 

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN


13.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Heiða Karen Fylkisdóttir og Guðmundur Örn Þorsteinsson.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN
13.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Linda Dögg Jóhannsdóttir.
13.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldor Hjaltsson.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldor Hjaltsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er Valdimar Jón Sveinsson
13.2.6 Starfsmannastjóri er Valdimar Jón Sveinsson.
13.2.7 Tengiliður keppenda er Kristín Kristinsdóttir

GREIN 13.3 STAÐREYNDADÓMARAR
13.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.

 

GREIN 14 KÖNNUN SÉRLEIÐA

14.1 Könnun sérleiða er leyfð ótakmarkað en senda þarf upplýsingar um skráningarnúmer, bíltegund og lit sem og hvaða dagsetningar ökumenn ætla sér að leiðarskoða. Nánari upplýsingar munu birtar á upplýsingatöflu keppninnar ef þörf verður á. 

GREIN 15 VIÐGERÐIR

Samkvæmt grein 3.6.4 í rallýreglum er keppnishaldara heimilt að setja takmarkanir á hvar og hvenær gera má við ökutæki í keppni. Viðgerðarbann kemur fram á tímamaster.

GREIN 16 HINDRANIR / ÞRENGINGAR

Samkvæmt grein 3.8.23 í rallýreglum er keppnishaldara heimilt að koma upp hindrunum / þrengingum á sérleiðum. Staðsetning þeirra verður birt á upplysingartöflu keppninnar.

 

GREIN 16 flutningur

Heimilt er að flytja keppnisbíla á kerrum á eftirfarandi leiðum:

  • Frá næturhléi á laugardagsmorgni að Dómadal.
  • Frá þjónustuhléi á laugardagskvöldi í næturgeymslu.
  • Frá næturgeymslu að Kaldadal.

 

 

GREIN 17 OFURLEIÐ

SS 20 Djúpavatn Norður B er ofurleið

 

GREIN 18 AUGLÝSINGAR 

Samkvæmt grein 7.3.1 í rallýreglum er keppnishaldara heimilt að selja auglýsingar á keppnisbíla. Hyggist hann gera það skal geta um það á upplýsingatöflu.

 

GREIN 19 TÍMATÖKU- OG STAÐSETNINGARBÚNAÐUR (TOS)

19.1 Ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu vera með rafrænan TOS frá keppnishaldara alla keppnina.

19.1.1 Ísetning á TOS fer fram við skoðun ökutækja, og verður framkvæmd af fulltrúum keppnishaldara.

19.2 Öll ökutæki skulu hafa eftirfarandi búnað fyrir TOS við skoðun:

19.2.1 RAM® kúlu festingu, stærð B, til að festa TOS í ökutækið. Hún skal vera þannig staðsett á/í mælaborði ökutækis að LED-ljósið á TOS tækinu sé sýnilegt og það verði aðgengileg áhöfn ökutækisins. °

19.2.2 Rafmagnssnúru með Deutsch DTM06-6S (e. female) endatengi sem er innan 20 cm frá RAM® kúlu festingunni.

19.2.2.a Pinni 1 skal tengdur við +12V DC spennu og pinni 4 við mínus (jörð) með að lágmarki 0,5q (kvaðrat) vír.

19.2.2.b +12V spennuvírinn skal varinn með 5A öryggi.

19.2.2.c Rafmagn til tengisins skal aftengjast þegar aðalrofi (höfuðrofi / e. master switch) er slökktur.

19.2.3 Viðeigandi RAM® tengiarm (e. connecting socket arm) til að tengja TOS við ökutækið.

19.3 TOS boxið sjálft er 200 mm x 50 mm x 36 mm að umfangi. RAM® kúlu festing, stærð B, er föst neðan á tækinu og stendur hún um það bil 35 mm út úr því.

19.4 Nákvæmar rekstrarupplýsingar fyrir TOS verða birtar á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun, teljist það þörf.

19.5 Ekki er heimilt að aftengja TOS eða fjarlægja úr ökutæki nema þegar áhöfn viðkomandi ökutækis er hætt keppni og skila á búnaðinum til keppnishaldara.

19.6 Við lok keppni ber að aftengja tækið og skila því til keppnishaldara.

Úrslit

Heildarúrslit

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 32
2 Jósef Heimir Guðbjörnsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson
BÍKR
BÍKR
Mitsubishi Lancer Evo VI 25.5
3 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
BÍKR
Mitsubishi Lancer EVO 19
4 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 15
5 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 12
6 Hanna Ragnarsdóttir
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdóttir
AÍH
AÍFS
Subaru Impreza 9
7 Pálmi snær sveinsson
Aðst: Trausti Freyr Sveinsson
AÍH
AÍH
Volvo 940 6
8 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
9 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Robbie Sandford
BÍKR
Utan félags
Ford Fiesta R5 0
10 Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
11 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta 0
12 Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir
AÍH
AÍH
Evo 0
13 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
0

Flokkur A

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
BÍKR
Mitsubishi Lancer EVO 0
2 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
3 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
4 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Robbie Sandford
BÍKR
Utan félags
Ford Fiesta R5 0
5 Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
6 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta 0
7 Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir
AÍH
AÍH
Evo 0
8 Jósef Heimir Guðbjörnsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson
BÍKR
BÍKR
Mitsubishi Lancer Evo VI 0
9 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
0

Flokkur C

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 33
2 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 24.5
3 Hanna Ragnarsdóttir
Aðst: Vigdis Pála Þórólfsdóttir
AÍH
AÍFS
Subaru Impreza 19
4 Pálmi snær sveinsson
Aðst: Trausti Freyr Sveinsson
AÍH
AÍH
Volvo 940 15

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur