Miðsumarsrall 2.umferð

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: bikr@bikr.is

Lýsing

 Miðsumarsrally BÍKR verður haldið laugardaginn 27. júní á hinu stórbrotna Snæfellsnesi. 

Í hádeginu verður viðgerðarhlé í Ólafsvík þar sem þátttakendur geta lagað bíla sína, spjallað og notið stemningarinnar áður en haldið verður áfram. Nákvæm staðsetning verður auglýst síðar.

Við hlökkum til að sjá ykkur í góðum félagsskap og njóta saman  á Snæfellsnesi!

Dagskrá

1. Maí – Skráning hefst

Keppnisgjald er ,63.000- kr. pr. Áhöfn

16. Maí – Tímamaster birtur (með fyrirvara um breytingar)

22. júní – Skráningu lýkur kl. 17:00

23. júní – Rásröð birt kl. 10:00

24. júní – Keppnisskoðun kl. auglýst síðar

Bílarnir í rásröð  1-9 mæta kl. 18  

Bílar í rástöð 10 og hærra mæta kl. 19 

24. júní – Starfsmannafundur kl. 20:00 auglýst síðar

26. júní – Keppnisskoðun fyrir þá bíla sem ekki fengu skoðun fer fram.... Staðsetning og tími auglýst síðar

27. júní – Keppendafundur Ólafsvík - auglýst síðar

27. júní – Keppni hefst frá Ólafsvík kl 7:20

27. júní – Keppnislok í Ólafsvík 

27. júní – Verðlaunaafhending. Staðsetning og tími auglýst síðar.

Skipuleggjandi

BÍKR

Keppnisstjóri: Linda Dögg Jóhannsdóttir

Aðstoðarkeppnisstjóri: Kristín Kristinsdóttir

Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson

Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson

Formaður dómnefndar: Tryggvi Magnús Þórðarson

Dómnefnd 1: Heiða Karen Fylkisdóttir

Dómnefnd 2: Guðmundur Örn Þorsteinsson

Dagsetningar

27. June 2026 kl: 07:00

Brautir og vegalengdir

Sérleiðir í rally
Lýsing:

Tegund/mótaröð

Rally

Íslandsmeistaramót - 2.umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 1. May 2026 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 22. June 2026 kl: 17:00

Flokkur A: 24500 kr.-

Flokkur C: 24500 kr.-

Flokkur E - Eindrif-1000 m3: 24500 kr.-

Flokkur E - Eindrif-1400 m3: 24500 kr.-

Flokkur E - Eindrif-X: 24500 kr.-

Flokkur J - Jeppaflokkur: 24500 kr.-

Flokkar

Flokkur A

Flokkur C

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur

Upplýsingatafla (skoða)

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#14 - 27. June 2026 kl: 15:28
Lokaúrslit

Dómnefnd staðfestir lokaúrslit keppninnar samanber meðfylgjandi skjal


Frá: Keppnisstjóra - Til: Allra

#13 - 27. June 2026 kl: 14:46
Bráðabirgðaúrslit

Sjá meðfylgjandi skjal sem sýnir bráðabirgðaúrslit.

Kærufrestur er 30 mín og hefst við birtingu þessa upplýsingakjals.

Keppendur eru minntir á heimild sína til kæru skv. grein 13 í Reglubókinni.

Hala niður viðhengi

Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#12 - 27. June 2026 kl: 00:24
Áhöfn á bifreið #2 mætti ekki á keppendafund

Til samræmis við grein 9.1 í sérreglum Miðsumarsralls haldið 27. júní 2026, sem hljóðar svo:

Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.

og grein 9.1.a sem hljóðar svo:

Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

þá kemur skýrt fram að það er skylda keppenda að sitja þennan fund.  

Áhöfn bifreiðar #2, né fulltrúi hennar, var á keppendafundi sem auglýstur var 18:30 í upplýsingaskýrslu #6 dagsettri þann 23. júní 2026 kl: 12:45.  Fundinum seinkaði vegna seinkunar skoðunar, en var haldinn á auglýstum stað, Orku, Stórhöfða 37.

Áhöfn með jafn mikla keppnisreynslu í rally og reglum þeim sem þar gilda á ganga á undan með góðu fordæmi og mæta á keppendafund.  Áhöfnin á að vita að tilmæli og leiðbeiningar keppnisstjóra, sem fram koma á keppendafundi eru ígildi upplýsingaskýrsla og ber að fara eftir þeim.  Þannig að sitja ekki fundinn getur þýtt að mikilvægar upplýsingar komast ekki til skila, kannski með alvarlegum afleiðingum..

Eins og kemur fram í grein 9.1.a í sérreglum keppninnar þá segir að refsing fyrir að mæta ekki á keppendafund geti varðað brottvísun úr keppni.

Dómnefnd áminnir því áhöfn bifreiðar #2 fyrir það að hafa ekki mætt á keppendafund þann 27. júní 2026, sem ráðger var kl. 18:30 en seinkaði.

Aðilar eru minntir á heimild sína til kæru samkvæmt grein 13 í Reglubókinni.

 


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#11 - 26. June 2026 kl: 23:47
Niðurstaða keppnisskoðunar

Dómnefnd hefur fengið skýrslu skoðunarmanns sem staðfestir að allir utan áhöfn á bifreið #2 hafi staðist skoðun.  

Athugasemdir við bifreið #2 voru að ökuskírteini ökumanns var ekki framvísað, keppnismerkingar bifreiðar var ábótavant og það vantaði öryggisþríhyrninga í bifreiðina.

Skoðunarmaður ákvað að endurskoðun færi fram kl. 8:00 að morgni 27. júní 2026 við upphaf keppninnar við gatnamót vega 52 og 550.


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

#10 - 26. June 2026 kl: 23:41
Staðreyndadómarar

Staðreyndadómarar í þessari keppni eru starfsmenn tímavarðstöðva, undanfari 0 og 00 og eftirfari


Frá: Dómnefnd - Til: Allra

#9 - 25. June 2026 kl: 23:15
Skoðun bifreiðar #6

Dómnefnd hefur borist beiðni um að keppnisskoðun bifreiðar megi fara fram síðar vegna tafa á afhendingu varahluta.  Sé skoðunarmaður samþykkur þá samþykkir dómnefnd fyrir sína hönd þessa frestun skoðunar.


Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#8 - 24. June 2026 kl: 17:27
Breyting á rásröð

Hala niður viðhengi

Frá: Keppnisstjóra - Til: keppenda

#7 - 24. June 2026 kl: 15:15
Rásröð

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#6 - 23. June 2026 kl: 12:45
Uppfærð dagskrá

22. júní – Skráningu lýkur kl. 17:00

23. júní – Rásröð birt kl. 20:00

26. júní – Keppnisskoðun kl. 18:00 – Orka - Stórhöfða 37

26. júní – Keppendafundur kl 18:30 - Orka - Stórhöfða 37

26. júní – Starfsmannafundur kl. 19:00 í Orka - Stórhöfða 37

27. júní – Keppnisskoðun fyrir þá bíla sem ekki fengu skoðun fer fram kl 8:00 á Malarplani við Uxahryggi

27. júní – Keppni hefst við byrjun fyrstu sérleiðar

27. júní – Keppnislok við lok sérleiðar á malarplani við Uxahryggi 


Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#5 - 23. June 2026 kl: 12:00
Leiðabók

Hér kemur leiðabókin

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#4 - 22. June 2026 kl: 13:56
Uppfærð dagskrá og tímamaster

Bættum við tímamaster með þjónustubanni og ofurleið

 

22. júní – Skráningu lýkur kl. 17:00

25. júní – Rásröð birt kl. 10:00

26. júní – Keppnisskoðun kl. 18:00 – Orka - Stórhöfða 37

27. júní – Keppendafundur kl 18:30 - Orka - Stórhöfða 37

26. júní – Starfsmannafundur kl. 19:00 í Orka - Stórhöfða 37

27. júní – Keppnisskoðun fyrir þá bíla sem ekki fengu skoðun fer fram kl 8:00 á Malarplani við Uxahryggi

27. júní – Keppni hefst við byrjun fyrstu sérleiðar

27. júní – Keppnislok við lok sérleiðar á malarplani við Uxahryggi 

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: keppenda

#3 - 22. June 2026 kl: 13:17
Nýr tímamaster - birtur með fyrirvara

Við biðjumst afsökunar á seinaganginum varðandi Rally-keppnina 27. júní.

Upphaflega leiðin er því miður enn ófær vegna snjóa og því þurftum við að taka upp Plan B, það hefur valdið töfum þar sem enn er verið að klára öll nauðsynleg leyfi fyrir Kaldadal og Uxahryggi.

Við birtum því tímamaster með fyrirvara um endanlega staðfestingu leyfa.

Takk fyrir þolinmæðina og skilninginn – við uppfærum ykkur um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.

Hala niður viðhengi

Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Allra

#2 - 17. June 2026 kl: 13:14
Breyting á keppni

Upplýsingar um rallið 27. júní
Jökulháls og Prestahraun eru enn ófær vegna snjóa, við reyndum að fá þetta mokað en magnið af snjó er of mikið og því er unnið að því að setja upp rall á Kaldadal og Uxahryggjum. Nú er verið að sækja um tilskilin leyfi fyrir þeim leiðum.
Ef leyfisveitingar ganga ekki eftir þurfum við að endurskoða tímasetningar og lengd keppninnar út frá þeim leiðum sem við höfum nú þegar leyfi fyrir og eru færar á Snæfellsnesi.
Við munum upplýsa um endanlegt fyrirkomulag um leið og staðan skýrist. Við þökkum fyrir þolinmæðina og skilninginn.


Frá: Keppnisstjóra - Til: Allra

#1 - 8. June 2026 kl: 20:31
1# Tímamaster

Hala niður viðhengi
Skoða allar færslur

Sérreglur Miðsumarsrall 2. umferð rally BÍKR í Íslandsmeistaramótinu 2026

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Miðsumarsrall 2. Umferð, Íslandsmótsins í rally 2026.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Rally og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Snæfellsnesi 27. júní 2026.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin getur verið felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
1.5.1 Aðeins verður keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Linda Dögg Jóhannsdóttir, Kristín Kristinsdóttir ásamt stjórn BÍKR

3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar Linda Dögg Jóhannsdóttir

3.2 Framkvæmdanefndar keppninnar er til heimilis að Engjavegi 6

3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 6962520

3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er bikr@bikr.is

GREIN 4 KEPPNISFLOKKAR

Keppt verður í eftirtöldum flokkum:

4.1 Heildin
4.1.1 Flokkur C
4.1.2 Flokkur E – Eindrif
4.1.3 Flokkur TO – Jeppaflokkur

4.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 5 SKRÁNING

5.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.

5.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

5.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

5.4 Skráningu lýkur þann 22.Júní kl 17:00

5.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru eru samþykktar  í þessari keppni.

5.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 60.000
5.6.a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.

5.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
5.7.a þátttökurétt í keppninni og leigu vegna tímatökubúnaðar
5.7.b keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 6 TRYGGINGAR

6.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

6.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 7 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

7.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
7.1. a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

7.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 7.1 við mætingu á keppnisstað og hvenær sem þess er krafist á meðan keppni stendur.

7.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
7.3. a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 8 UPPLÝSINGATAFLA

8.1 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/543.
8.1.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra.

GREIN 9 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

9.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
9.1. a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur það varðað brottvísun úr keppni.

9.2 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

9.3 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.

GREIN 10 RÆSING

10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun. 

10.2.1 Fyrsta ökutæki verður ræst kl. 7:20 samkvæmt tímaáætlun.

10.2.1.a Önnur ökutæki verða ræst með einnar 1 mínútna millibili.

10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.

10.2.2.a Tímaverðir munu telja niður að rástíma inn á sérleiðar.

GREIN 11 ÚRSLIT

11.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rally.

11.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

11.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt dagskrá.

11.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 12 VERÐLAUN

12.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina samkvæmt lokaúrslitum

12.2 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum samkvæmt lokaúrslitum.

GREIN 13 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 13.1 DÓMNEFND
13.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Heiða Karen Fylkisdóttir og Guðmundur Örn Þorsteinsson.

GREIN 13.2 HELSTU STARFSMENN
13.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Linda Dögg Jóhannsdóttir.
13.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldor Hjaltsson.
13.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldor Hjaltsson.
13.2.4 Sjúkrafulltrúi er Guðni Sigurðsson
13.2.5 Umhverfisfulltrúi er Valdimar Jón Sveinsson
13.2.6 Starfsmannastjóri er Valdimar Jón Sveinsson.
13.2.7 Tengiliður keppenda er Kristín Kristinsdóttir

GREIN 13.3 STAÐREYNDADÓMARAR
13.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar fyrir ræsingu fyrsta bíls.

GREIN 14 KÖNNUN SÉRLEIÐA

14.1 Könnun sérleiða er leyfð ótakmarkað en senda þarf upplýsingar um skráningarnr,bíltegund og lit sem og hvaða dags ökumenn ætla sér að leiðarskoða. Nánari upplýsingar munu birtar á upplýsingatöflu keppninnar ef þörf verður á. 

GREIN 15 VIÐGERÐIR

 15.1 Þau svæði eða leiðarhutar sem ekki verður heimilt að gera við ökutæki á verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun ökutækja.

GREIN 16 HINDRANIR / ÞRENGINGAR

16.1 Upplýsingar um staðsetningu hindrana til að draga úr hraða ökutækja á sérleiðum koma fram í leiðarbók keppninnar og leiðarlýsingu.

GREIN 17 OFURLEIÐ

17.1 Ofurleiðin í þessari keppni er sérleið nr. 9.

GREIN 18 AUGLÝSINGAR 

18.1 Nýti keppnishaldari sér rétt sinn, samkvæmt grein 7.3.1 í Keppnisgreinareglum fyrir rally, til að selja auglýsingar á ökutæki í keppninni, mun það tilkynnt nánar á upplýsingatöflu keppninnar.

18.2 Þau svæði á ökutækjum sem keppnishaldari hyggst nýta verða auglýst síðar

GREIN 19 TÍMATÖKU-  OG STAÐSETNINGARBÚNAÐUR (TOS)

19.1 Ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu vera með rafrænan TOS frá keppnishaldara alla keppnina.

19.1.1 Ísetning á TOS fer fram við skoðun ökutækja, og verður framkvæmd af fulltrúum keppnishaldara.

19.2 Öll ökutæki skulu hafa eftirfarandi búnað fyrir TOS við skoðun:

19.2.1 RAM® kúlu festingu, stærð B, til að festa TOS í ökutækið. Hún skal vera þannig staðsett á/í mælaborði ökutækis að LED-ljósið á TOS tækinu sé sýnilegt og það verði aðgengileg áhöfn ökutækisins. 

19.2.2 Rafmagnssnúru með Deutsch DTM06-6S (e. female) endatengi sem er innan 20 cm frá RAM® kúlu festingunni.

19.2.2.a Pinni 1 skal tengdur við +12V DC spennu og pinni 4 við mínus (jörð) með að lágmarki 0,5q (kvaðrat) vír.

19.2.2.b +12V spennuvírinn skal varinn með 5A öryggi.

19.2.2.c Rafmagn til tengisins skal aftengjast þegar aðalrofi (höfuðrofi / e. master switch) er slökktur.

19.2.3 Viðeigandi RAM® tengiarm (e. connecting socket arm) til að tengja TOS við ökutækið.

19.3 TOS boxið sjálft er 200 mm x 50 mm x 36 mm að umfangi. RAM® kúlu festing, stærð B, er föst neðan á tækinu og stendur hún um það bil 35 mm út úr því.

19.4 Nákvæmar rekstrarupplýsingar fyrir TOS verða birtar á upplýsingatöflu keppninnar fyrir skoðun.

19.5 Ekki er heimilt að aftengja TOS eða fjarlægja úr ökutæki nema þegar áhöfn viðkomandi ökutækis er hætt keppni og skila á búnaðinum til keppnishaldara.

19.6 Við lok keppni ber að aftengja tækið og skila því til keppnishaldara.

Úrslit

Heildarúrslit

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Daníel Sigurðarson
Aðst: Ásta Sigurðardóttir
AÍH
AÍH
Skoda R2 23
2 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 17
3 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
AÍFS
Ford Fiesta 13
4 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
10
5 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
AÍH
Mitsubishi Lancer EVO 8
6 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta R5 6
7 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 4
8 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 3
9 Sigvaldi Jónsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson
AÍH
BÍKR
Mitsubishi Lancer Evo VIII 0
10 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
11 Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
12 Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir
BÍKR
AÍH
Subaru Impreza 0
13 Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir
AÍH
AÍH
Evo 0

Flokkur A

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Sigvaldi Jónsson
Aðst: Gunnar Eyþórsson
AÍH
BÍKR
Mitsubishi Lancer Evo VIII 0
2 Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Adam Máni Valdimarsson
BÍKR
AÍH
Mitsubishi Lancer EVO 0
3 Ingvi Björn Birgisson
Aðst: Valgarður Davíðsson
BÍKR
AÍFS
Ford Fiesta 0
4 Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
5 Sigurður Arnar Pálsson
Aðst: Halldóra Rut Jóhannsdóttir
AÍFS
KK
Mitsubishi Evo 5 0
6 Rúnar L. Ólafsson
Aðst: Rafn Hlíðkvist Björgvinsson
BÍKR
BÍKR
Ford Fiesta R5 0
7 Daníel Sigurðarson
Aðst: Ásta Sigurðardóttir
AÍH
AÍH
Skoda R2 0
8 Halldór Víkingur Guðbrandsson
Aðst: Sigurgeir Guðbrandsson
BÍKR
BÍKR
Subaru Impreza 0
9 Agnar Ingi Sigurdsson
Aðst: Ísak Guðjónsson
BÍKR
BÍKR
0
10 Jóhann Ingi Fylkisson
Aðst: Helena Ósk Elvarsdóttir
AÍH
AÍH
Evo 0

Flokkur C

Sæti Nafn Félag Keppnistæki Lið Stig
1 Stefán Borgar Magnússon
Aðst: Atli þór Höskuldsson
AÍFS
AÍFS
Subaru impreza 22
2 Björgólfur Bersi Kristinsson
Aðst: Hergill Henning Kristinsson
AÍH
AÍH
Subaru impreza 18
3 Daníel Jökull Valdimarsson
Aðst: Hanna Ragnarsdóttir
BÍKR
AÍH
Subaru Impreza 0

Flokkur E - Eindrif-1000 m3

Flokkur E - Eindrif-1400 m3

Flokkur E - Eindrif-X

Flokkur J - Jeppaflokkur